Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



þriðjudagur, september 09, 2003

KFS heldur lokahóf laugardaginn 13. september 

Á laugardaginn kemur verður haldið slútt hjá KFS og verður það haldið í Golfskálanum, eins og í fyrra. A.KFS mun sjá að mestu um dagskránna og verða örugglega með einhver góð skemmtiatriði. Þá má gera ráð fyrir ræðunni hjá Doktornum í dagskránni og að sjálfsögðu verðlaunaafhendingu fyrir afrek sumarsins. Matur verður frá Höllinni og þeir sem vilja geta fengið miða á Sálarballið með á 1.000 kr. Annars kostar 1.000 kr. á slúttið, félagið ekki alveg nógu ríkt til að hafa frítt. Held það drepi engann. Væntanlega mun verða komið saman einhvers staðar áður og haldið síðan í Golfskálann svona um átta leytið. Gott væri að þeir leikmenn sem ekki komast gætu látið vita svo ekki sé verið að gera ráð fyrir þeim í mat. Einnig þeir sem hyggjast taka með sér maka að láta vita. Hægt að hringja í Óðinn í s. 664-4910 eða senda póst af síðunni.


-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:26 //-



KFS-Sindri 1-1 

Á sunnudaginn var lék KFS sinn síðasta leik í 2. deild í sumar er þeir tóku á móti Sindra frá Hornafirði. Var leikið á Hásteinsvelli og var þetta fyrsti deildarleikur KFS þar í sumar. Mjög margir af þeim leikmönnum sem hafa verið að spila í sumar gátu ekki leikið og sáust þarna ný andlit, bæði í liðinu og á bekknum. Voru menn ákveðnir í að enda tímabilið með sigri þrátt fyrir að vanta mannskap.

En það má segja að í fyrri hálfleik hafi lítið gengið upp hjá leikmönnum KFS, þeim gekk illa að halda boltanum innan liðsins og voru mikið í eltingaleik við Sindramenn. Ekki voru færin mörg, Stebbi Braga komst í gegn en skaut framhjá og þá átti Formaðurinn gott skot undir lok hálfleiksins sem markmaðurinn náði ekki að halda en þeir náðu að bjarga. Má segja að þetta hafi verið hættulegustu færi KFS í fyrri hálfleik. En það voru Sindramenn sem náðu að skora í fyrri hálfleik þegar um fimm mín. voru til leikhlés og skömmu seinna skölluðu þeir framhjá af markteig. En Doktorinn hélt mikla ræðu í búningsklefanum í leikhléi og komu menn ákveðnari til leiks í síðari hálfleik.

Strax í byrjun átti Yngvi skalla framhjá af markteig eftir góða fyrirgjöf frá Sæþóri. En áfram hélt barningurinn en KFS var betri aðilinn í síðari hálfleik og sköpuðu sér nokkur færi. Sindramenn áttu nokkrar rispur sem þeir náðu ekki að nýta sér sem betur fer. En þegar um 20 mín. voru til leiksloka var einum Sindramanni vikið af leikvelli eftir brot á Sæþóri sem var að sleppa einn í gegn. Eftir það hresstust sóknaraðgerðir KFS og m.a. átti Stebbi Braga sendingu á Óðinn Sæ. sem renndi boltanum hárfínt framhjá úr dauðafæri. Og þegar 90 mín. voru komnar á leikklukkuna brá Siggi Braga markmaður sér í sóknina og átti hann gott skot sem var varið í horn. Það var svo á 94 mín. eða lokasekúndum leiksins sem Sæþór náði að skora sitt fyrsta mark í sumar eftir góða fyrirgjöf frá Yngva. Ekki seinna vænna fyrrir Sæþór að skora. Sindramenn tóku miðja og þá flautaði dómarinn leikinn af. KFS endaði því tímabilið með 19 stig, níu stigum meira en Sindri sem var í næst neðsta sæti. Má segja að markmiðinu hafi verið náð, að halda sér uppi og vel það. En í liði KFS í þessum leik var m.a. Simmi Helga sem spilaði sinn fyrsta leik í sumar og Siggi Braga lék í markinu. Þá kom Mási flugkappi inná og spilaði sinn fyrsta leik fyrir KFS, aðrir eins sprettir hafa ekki sést á Hásteinsvelli!! Þá er þessu fyrsta leiktímabili KFS í 2. deild lokið og nú geta menn tekið sér smá frí áður en undirbúningurinn fyrir næsta ár hefst, en meiningin er að vera með í Deildarbikarnum á næsta ári þar sem margir af leikmönnum KFS eru nú komnir til Reykjavíkur í skóla og því ætti að vera auðveldara að ná í lið.

Liðið: Siggi Braga, Jóhann Sveinn, Stebbi Braga, Lúðvík, Einar Björn, Sæþór, Yngvi, Óðinn Sæ., Óðinn St. (Mási), Sigurður Ingi V., Simmi Helga (Biggi Stefáns).


-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:25 //-


laugardagur, september 06, 2003

KFS-Sindri kl. 14 sunnudag á Hásteinsvelli 

KFS tekur á móti Sindra frá Hornafirði á Hásteinsvelli sunnudaginn 7. september kl. 14. Þetta er síðasti leikur KFS í 2. deildinni þetta árið og hvetjum við alla að mæta á völlinn og styðja KFS. A.KFS verður á svæðinu sem og Mási flugmaður. Það munar um minna. Aðgangseyrir 500 kr. fyrir fullorðna.


-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:25 //-


þriðjudagur, september 02, 2003

KFS-Sindri á Hásteinsvelli á sunnudag 

KFS spilar sinn fyrsta deildarleik í sumar á Hásteinsvelli á sunnudag kl. 14 en þá taka þeir á móti Sindra frá Hornafirði. Þetta er síðasti leikur sumarsins og hvetjum við alla til að mæta á völlinn, þar sem langt er í næsta heimaleik hjá ÍBV, og halda sér í formi. Liðsuppstilling KFS gæti orðið forvitnileg og hvetjum við alla sem geta að mæta á völlinn og berja liðið augum.


-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:24 //-



2. deild á næsta ári 

Í kvöld skýrðist hvaða lið kæmu uppúr 3. deild, en síðari leikir undanúrslitanna fóru fram í kvöld. Það verða Víkingur Ólafsvík og Leiknir Reykjavík sem koma uppí 2. deild. Víkingur vann Hött á Egilsstöðum og þannig losnum við að þurfa að fara austur næsta sumar, sem betur fer. Reyndar stefnir allt í að Leiftur/Dalvík sé að falla úr 1. deild þannig að norðanferðirnar verða jafnmargar, því Völsungur fer upp. Við bætist ferð á Snæfellsnesið næsta sumar, sem er ekki svo slæmt. Þannig að næsta ár lítur þokkalega út hvað ferðir varðar, alla vega ekki verra en í ár. Leit alla vega ekki vel út þegar fyrri leikirnir í 8 liða úrslitum 3. deildar voru búnir.


-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:21 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008