Búið er að draga í riðla í íslandsmótinu innanhúss og í 1. deild drógust ÍBV og Smástund saman í riðil ásamt Breiðablik og Fram. Er leikið laugardaginn 22. nóvember. Þá eru Framherjar í 3. deild í riðli með Einherja, Leiftri/Dalvík og Neista D. Þar verður leikið sunnudaginn 23. nóvember. Báðar deildirnar eru leiknar í íþróttahúsinu Austurbergi.
-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:30 //-
Klukkan 20:30 á gervigrasi Þróttar í Laugardal var fyrsti leikur KFS reykjavík þar sem peyjar frá eyjum kepptu við Iceland United og gerðu sér lítið fyrir og unnu 1-2. Leikurinn byrjaði mjög jafn en skoruðu þeir snemma í leiknum. Svo komst Tommi einn á móti markmanni en skaut rétt framhjá. En í lok fyrri hálfleiks bætti hann upp fyrir það og jafnaði leikinn. 1-1 í hálfleik. KFS rvk var betra í seinni hálfleik og átti nokkur færi og einnig fengu Iceland menn nokkur góð færi en Hannes átti frábæran dag í markinu og bjargaði hvað eftir annað. Svo þegar 6-10 mín voru eftir að leiknum skoraði Sæþór með fínu skoti frá markteig, uppi í hornið nær, markvörðurinn átti ekki möguleika. Þeir sóttu það sem eftir var leiks og bjargaði Smári frábærlega þegar smá var eftir og meiddist í kjölfarið (vonandi ekkert alvarlegt). Svo flautaði dómarinn leikinn af og sigurinn staðreynd. KFS reykjavík taplaust með markatöluna 50 % í plús.
Hópurinn sem keppti (frjálsar skiptingar, einn hvíldi í 5 mín svo næsti o.s.frv.): Hannes í markinu, Hjalti Einars, Sveinn Ágúst, Trausti Hermanns, Smári Jökull, Styrmir, Hjalli, Ívar Örn, Tommi, Viktor Smári, Halli og loks Sæþór. Frábær leikur og frábær barátta í öllum.
-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:30 //-
Á síðast liðnum tveimur vikum hafa komið þrisvar sinnum 13 réttir á getraunir hjá KFS sem samtals hafa gefið um 700.000 kr. Hjalti fékk tvisvar sinnum 13 rétta á Ítalíu um þar síðustu helgi og nú um síðustu helgi fékk einn hópurinn sem keypti getraunahlutabréf 13 rétta einnig á Ítalíu. Samanstendur sá hópur af þremur hlutabréfum, en í þessum hópi eru fjórir um þessi þrjú bréf og fær hvert bréf um 155.000 kr.Það er að sjálfsögðu Doktorinn sjálfur sem sér um þetta allt saman og tippar eftir kerfum sem hann hefur sjálfur búið til og virka svona líka vel. Samtals í gegnum getraunir hjá KFS (áður Framherjum) hafa þrettán eða fjórtán sinnum komið 13 réttir. Nú eru tvær vikur eftir að hópakeppninni hjá KFS, en hver leikur stendur yfir í 10 vikur. Bráðum förum við aftur af stað að reyna að selja getraunahlutabréf og kostar hvert bréf 5.000 kr. og er því tippað fyrir 500 kr./vikur í 10 vikur. Fleiri en einn geta verið saman með eitt bréf. Svo mynda þrjú bréf saman einn hóp, en Doktorinn sér um að raða í hópa. KFS er á topp tíu lista íslenskra getrauna yfir fjölda seldra raða yfir allt landið og skákar þar mörgum stórklúbbnum. Hægt er að senda póst á félagið ef menn vilja fræðast um þetta eða kaupa bréf.
-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:30 //-
Nú er pásan búinn og fjörið byrjað innanhúss. Æfingar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 20:30. Vænti þess að sjá Mása á miðvikudag ef hann er ekki floginn til útlanda. Allir að mæta, ekki veitir af þar sem margir eru búsettir í Reykjavík yfir vetrartímann. Ekki tæpir tveir mánuðir í íslandsmóitið innanhúss.
-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:28 //-
Síðustu helgina í nóvember fer fram íslandsmótið í knattspyrnu innanhúss. Sem fyrr taka Smástund og Framherjar þátt, Smástund í 1. deild og Framherjar í 4. deild. Smástund og ÍBV lögðu inn umsókn til KSÍ um að 1. deildin yrði spiluð hér í Eyjum, en ekki er vitað hvort það hefur fengist afgreitt. Nú er bara að drífa sig á æfingar og mæta eldsprækir til leiks í lok nóvember.
-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:27 //-