Nú er búið að taka í gagnið nýtt kerfi hjá ÍBV varðandi aðgang aðildar-félaganna að líkamsræktarsal íþróttamiðstövarinnar. Frá og með gærdeginum er ekki lengur hægt að ganga í salinn og segjast vera í KFS. Nú er búið að útdeila miðum til aðildarfélaganna sem þau verða að koma til sinna félagsmanna. Þessum miðum þarf að framvísa í hvert skipti sem farið er í líkamsrækt og þarf að kvittta fyrir í sérstaka bók. Nú er einnig hægt að fara í Hressó og gilda þessir miðar þar líka. Hvert aðildarfélag sendi nafnalista í ÍBV og er þeim sem eru á viðkomandi listum einum heimilt að fara í líkamsrækt, þeir einir fá bara miða. Þetta virkar þannig að ef þú ætlar í líkamsrækt, annað hvort í Íþróttamiðstöðinni eða Hressó, þarftu í fyrsta lagi að vera á þessum nafnalista og í öðru lagi að hafa miða. Óheimilt er að sjálfsögðu að láta aðra hafa miða sem maður hefur fengið útdeilt. Ef menn fara að reyna að svindla á þessu má búast við að þetta verði ekki reynt aftur. Þetta er mikil framför að geta farið á báða staði og er þessi samningur sem gerður var milli ÍBV og Vestmannaeyja-bæjar til eins árs og verður hann þá endurskoðaður, m.a. með tilliti til heildarfjölda miða. Strax er hafin umræða um að miðar séu alltof fáir og verður fjöldi miða endurskoðaður í maí á næsta ári. Hvert aðildarfélag fékk úthlutað 100 miðum til að byrja með og eins og gefur að skilja ef allir færu þrisvar í viku væri það fljótt að klárast. En það sem má ekki gerast er að við endum með einhverja miða ónotaða þegar samningurinn er útrunninn. Eftirfarandi nöfn eru á þessum fyrsta nafnalista og er heimilt 1. hvers mánaðar að breyta listanum. Þessir aðilar munu fá miða hjá formanninum og er þeim einum heimilt að nýta sér miðana. Njótið vel og lengi. Nú getum við Mási loksins farið að mæta 6 á morgnana í Hressó!!
Hjalti Kristjánsson
Óðinn Steinson
Ólafur Þór Berry
Víðir Róbertsson
Sigurður Ingi Vilhjálmsson
Magnús R. Magnússon
Magnús Steindórsson
Jóhann Sveinn Sveinsson
Yngvi Borgþórsson
Einar Björn Árnason
Birgir Stefánsson
Kristján Georgsson
Gunnar Bergur Runólfsson
Óðinn Sæbjörnsson
-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:32 //-
Nú hafa bæði Framherjar og Smástund lokið keppni í innanhússmótunum í knattspyrnu. Framherjar léku í 3. deild og fóru leikar þannig að þeir töpuðu fyrsta leik fyrir liðinu sem fór upp í 2. deild, en unnu hina tvo með glæsibrag. Var Doktorinn ánægður með gang mála í mótinu enda átti hann 45 ára afmæli sama dag og fékk að launum koníak. Í markinu hjá Framherjum spilaði Hannes nokkur Eiríksson mágur Magga Steindórs. og var hann að verja mjög vel í mótinu. Þá var einn strákur sem kom úr Val, Trausti Hermannsson einnig að spila vel. Verst var að Mási komst ekki og gat því ekki spreytt sig.
Smástund spilaði í 1. deild og var þar í riðli með Fram, Breiðablik og ÍBV. Fóru leikar þannig að þeir náðu sína fyrsta stigi í efstu deild og var það gegn ÍBV í síðasta leik, en sá leikur var úrslitaleikur um hvort liðið félli. ÍBV gerði jafntefli í öllum sínum leikjum og héldu sér uppi. Smástund féll hins vegar niður. Doktorinn var nú samt ánægður með þetta, að næla í fyrstu stigin og var Jóhann Sveinn markahæstur með 4 mörk. Í markinu hjá Smástund var Yngvi Bor. og stóð hann sig með prýði í nýju dýru hönskunum frá Magga Skó. Hefði samt viljað sjá hanskana gera betur.
-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 15:31 //-