Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



mánudagur, mars 08, 2004

Nýr hópleikur að hefjast 

Nýr 10 vikna hópleikur í getraunum KFS hefst um næstu helgi. Árangur okkar í getraunum heldur áfram að spyrjast út og alltaf er þeim að fjölga sem vilja taka þátt í þessu. Á síðasta ári var KFS í 9. sæti yfir landið í fjölda seldra raða, sem sýnir hversu mikilvægu starfi doktor Hjalti er að skila í þessu. Þá er hann einstaklega góður að næla í vinninga fyrir fólk, en venjan hefur verið sú að lágmark einn hópur hefur fengið utanlandsferð í hverjum hópleik. Stuðninginn sem fólk sýnir KFS með því að taka þátt í getraunum félagsins ber að þakka, en þetta er langstærsti tekjupóstur félagsins á hverju ári og ekki veitir af með þrjú lið að norðan í 2. deildinni í sumar líkt og síðasta ár. Uppá síðkastið hefur hvert sölumetið á fætur öðru verið slegið sem sýnir hversu mikill áhugi er á þessu. Þetta fer þannig fram að hver leikur stendur í 10 vikur og eru borgaðar 5.000 kr. fyrir svokölluð getraunahlutabréf, semsagt tippað fyrir 500 kr./viku. Hjalti sér um að tippa fyrir fólk og raðar niður í hópa. Venjulega eru þrjú getraunahlutabréf saman í hverjum hópi og geta fleiri en einn geta sameinast um bréf. Ef hópurinn vinnur (ekkert ef) skiptist vinningsupphæðin jafnt niður á hlutabréf. Þið verðið ekki svikinn af því að láta Hjalta tippa fyrir ykkur, held það sé leitin að öðrum eins tippara á landinu. Hann er búinn að fá sex sinnum 13 rétta á sl. 12 mánuðum þannig að kann þetta. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Hjalta í s. 481-2632 eða sent honum tölvupóst á framh@simnet.is og fræðst um þetta.


-// Þetta skrifaði Andri Hugo kl. 13:50 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008