KFS tók á móti Frey í bikarnum í dag á Helgafellsvelli. Freyr leikur í 3. deild og svona fyrirfram mátti gera ráð fyrir sigri KFS, án þess að um eitthvert vanmat hafi verið að ræða. Ef sigur næðist í þessum leik, væri KFS komið í 32-liða úrslit og ætti þar með möguleika á mótherjum úr efstu deild, líkt og gerst hefur undanfarin ár.
En leikurinn byrjaði með látum og átti KFS nokkrar sóknir strax í upphafi leiks, sem ekki tókst að nýta, þrátt fyrir ágæt færi. En það voru ekki liðnar nema um sex mínútur af leiknum þegar Siggi Ingi hafði skorað fyrsta markið með góðu skoti rétt fyrir utan vítateig. Svo leið og beið en Freyr átti líka færi, fyrst varði Kári vel úr þröngu færi og síðan fengu þeir óbeina aukaspyrnu inni í vitateig KFS en tókst sem betur fer ekki að jafna leikinn. KFS var meira með boltann en náði ekki að nýta færin nægilega vel. Það var ekki fyrr en um 5 mín. voru til leikhlés sem Víðir skoraði með góðu skoti. Svo liðu 2 mín. og þá var Trausti Hjalta búinn að koma KFS í 3-0 með skoti af stuttu færi. Doktorinn var nú ágætlega sáttur í leikhléi en vildi úr því sem komið var, keyra áfram og bæta við mörkum. Eitthvað hafði ræða hans að segja og skipting hans einnig, en Stebbi Hauks kom inná fyrir Sæþór.
Það var sama uppi á teningnum í síðari hálfleik og í þeim fyrri, KFS sótti meira og átti Kári heldur rólegan dag í markinu, þó hann hafi öskrað menn áfram í gríð og erg. Það var svo Erlingur Rikka sem kom KFS í 4-0 með góðu skallamarki eftir hornspyrnu. Svo var komið að þætti Stebba Hauks. Á 15 mín. kafla skoraði hann þrennu, tvö þeirra með skoti utan úr teig eftir sína frægu spretti og eitt af stuttu færi. Trausti Hjalta bætti svo við áttunda markinu og sínu öðru í leiknum og það var svo Yngvi sem átti síðasta orðið þegar hann setti níunda mark KFS í leiknum. Þessi sigur er sá stærsti í sögu KFS frá upphafi. Gaman að landa honum á heimavelli fyrir framan okkar dyggu stuðningsmenn.
Liðið: Kári, Valli, Valdi, Hjalti Jóh., Erlingur (Davíð E.), Trausti Hjalta, Siggi Ingi (Óðinn Sæ), Yngvi, Ívar, Víðir, Sæþór (Stebbi Hauks). Aðrir varamenn Siggi Dudek og Svenni
Í kvöld tók KFS á móti Aftureldingu en þetta var 3. umferð Íslandsmótsins í 2. deild. Bæði lið höfðu tapað fyrstu tveimur leikjunum og því nauðsynlegt að ná sigri. Það var stíf austanátt allan leikinn og gekk á með rigningarskúrum. Mjög erfitt að spila fótbolta í þessu veðri, en menn gerðu heiðarlegar tilraunir til þess.
KFS lék undan vindi í fyrri hálfleik og náði ekki að skapa sér nægilega góð færi til að skora. Fyrri hálfleikur var svolítið kaflaskiptur, KFS átti nokkrar sóknir í röð en síðan tók Afturelding við og átti ein tvö góð færi í hálfleiknum sem besti maður vallarins, Kári Kristján, náði að verja. Hvorugu liðinu tókst að skora í fyrri hálfleik.
Í þeim síðari var það sama uppi á teningnum, liðin skiptust á að sækja, en KFS þó með fleiri færi, en náði ekki að klára sóknirnar almennilega. Það var einna helst að Kári væri að sýna ótrúleg tilþrif í markinu á milli þess sem hann gargaði menn áfram og hvatti. En það var varamaðurinn Sigurður Ingi sem náði að skora glæsilegt mark eftir sendingu frá Sæþóri, tók boltann viðstöðulaust og þrumaði á markið. Vonir um fyrsta sigurinn kviknuðu, en þegar um 5 mín. voru til leiksloka náði Afturelding að jafna með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf, munaði litlu að Kári næði að verja en inn fór boltinn. Lokatölur því 1-1 í þessum mikla rokleik. Næsti leikur á mánudag í bikarnum gegn Frey frá Eyrarbakka. Leikurinn er kl. 16 á Helgafellsvelli.
Liðið: Kári, Valgeir, Trausti, Hjalti J., Stebbi Braga, Óðinn Sæ., Stebbi Hauks., Yngvi, Ívar, Víðir, Sæþór. Varamenn Hannes, Trausti Hjalta, Erlingur Rikka, Sigurður Ingi, Viðar
Föstudaginn 28. maí kl. 20 tekur KFS á móti liði Aftureldingar og ætla liðin að etja kappi á Helgafellsvelli. Þessi lið hafa bæði tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í mótinu og þyrstir í sigur. Það verður því um hörkuviðureign að ræða. Heyrst hefur að þunnhærður handboltaþjálfari hér í bæ reimi á sig takkaskóna. Sjón er sögu ríkari. Það er sama lága verðið og í fyrra, 500 kr. fyrir 14 ára og eldri. Allir á völlinn.
Svo á mánudag er það leikur í Visa bikarnum, en þá kemur Freyr í heimsókn, en þeir eru frá Eyrarbakka og leika í 3. deild. Vinni KFS þennan leik, eru þeir komnir í 32-liða úrslitin og geta þar mætt liðunum úr Landsbankadeildinni. Fer leikurinn fram kl. 16 á mánudag og verður á Helgafellsvelli.
Á sunnudag kl. 14 byrjar 2.deildin hjá KFS en þá taka þeir á móti KS frá Siglufirði. Verður leikið á Helgafellsvelli, sem eins og aðrir vellir í bænum kemur nokkuð vel undan vetri. Nokkrir nýir leikmenn koma til með að spila fyrir KFS í þessum leik og verður fróðlegt að sjá hvernig þeir munu standa sig. Sem fyrr er sama lága verðið, 500 kr. fyrir 14 ára og eldri, frítt fyrir þá yngri. Endilega mæta og hvetja KFS, en félaginu er spá falli af þjálfurum hinna liðanna í deildinni. Ekki veitir af að sýna þeim hvað í okkur býr!