Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



föstudagur, júní 25, 2004

Palli Hjarðar og Steingrímur lánaðir til KFS 

KFS hefur fengið liðsstyrk í baráttunni í 2. deild. Þeir Páll Hjarðar og Steingrímur Jóhannesson eru komnir yfir frá ÍBV. Þeir eru báðir að stíga upp úr erfiðum meiðslum og þurfa smá tíma til að komast í leikform. ÍBV hefur því lánað þá yfir og spila þeir báðir með KFS gegn Leiftri/Dalvík á morgun á Ólafsfirði. En þessa stundina eru leikmenn KFS að keyra norður á Ólafsfjörð, en leikurinn fer fram kl. 13:30 á morgun laugardag. Næsti heimaleikur KFS er laugardaginn 3. júlí gegn Víkingi Ólafsvík.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 21:19 //-


laugardagur, júní 19, 2004

KFS-Selfoss 3-3 

Loksins var gott veður í heimaleik hjá KFS, smá gola og hlýtt en völlurinn aðeins blautur eftir rigningu kvöldið áður. Eitthvað virtist góða veðrið slá leikmenn KFS út af laginu því lítið var að ganga til að byrja með í leiknum. Enda fór það svo að Selfoss komst yfir eftir 20 mín. leik með laglegu marki eftir einleik í vítateig KFS. Heldur slæm staða en sigur í þessum leik var eitthvað sem varð að gerast fyrir KFS. En aðeins sex mín. seinna var Selfoss komið í 2-0 eftir hálf misheppnað úthlaup Kára í markinu. En ekki gáfust leikmenn KFS upp þrátt fyrir þetta. Má segja að það sem eftir lifði hálfleiksins hafi KFS verið meira með boltann. Og þegar um 6 mín. voru til leikhlés náði Sigurður Ingi að taka sprettinn og minnkaði muninn með góðu marki. Nokkrum mín. seinna voru Selfyssingar svo elskulegir að skora sjálfsmark eftir góða pressu frá Sigurði Inga. Staðan því 2-2 í leikhléi. Má segja að mikil barátta hafi einkennt fyrri hálfleik, en dómaratríó leiksins var ekki alveg að valda starfi sínu í þessum leik og er þá á hvorugt liðið hallað.
En áfram hélt leikurinn þó og baráttan einnig. Greinilegt að bæði lið ætluðu sér sigur í þessum leik. Til tíðinda dró á 72 mín. þegar Ívar Róberts fékk að líta sitt annað gula spjald og leikmenn KFS því einum færri það sem eftir lifði leiks. En KFS efldist við þetta því aðeins þremur mín. seinna hafði Stebbi Hauks komið KFS í 3-2 eftir glæsilegan sprett og skoraði laglegt mark. Gryllti í fyrsta sigur KFS en leikmenn sofnuðu aðeins á verðinum því það tók Selfoss ekki nema þrjár mín. að jafna leikinn. Og þar við sat. Jafntefli 3-3 niðurstaða þessa leiks. Ljóst að KFS þarf sigur í næsta leik sem er erfiður útileikur gegn Leiftri/Dalvík á Ólafsfirði. KFS er neðst með 2 stig en næsta lið Afturelding er með 4 stig og Selfoss með 5 stig.
Liðið: Kári, Valli (Erlingur), Valdi, Sindri V., Ívar, Víðir, Yngvi, Siggi I. (Sæþór), Trausti, Viðar, Stebbi Hauks


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 20:40 //-


föstudagur, júní 18, 2004

KFS-Selfoss laugardag kl. 14 

Á morgun laugardag tekur KFS á móti Selfyssingum og verður eins og áður leikið á Helgafellsvelli og hefst leikurinn kl. 14. Nú er að duga eða drepast fyrir KFS og nauðsynlegt að ná sigri í þessum leik. Sindri Viðarsson hefur verið fenginn að láni frá ÍBV og mun hann að spila með KFS á morgun. Hvetjum alla til að fara á völlinn og garga frá sér allt vit. Aðgangseyrir sem fyrr 500 kr. fyrir 14 ára og eldri.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 21:56 //-


laugardagur, júní 12, 2004

KFS-Þróttur R. sunnudag kl. 11:30 

Þar sem ekki viðraði til flugs í dag hefur leikur KFS og Þróttar R. í 32-liða úrslitum Visa bikarsins verið settur á á morgun, sunnudag, kl. 11:30 á Helgafellsvelli. Er þetta síðasti leikurinn í 32-liða úrslitunum en þau áttu að klárast í dag. Nokkuð hefur verið um óvænt úrslit í gær og í dag og kannski heldur það áfram á morgun. Allir að mæta og hvetja KFS áfram í þessum leik.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 21:59 //-


föstudagur, júní 11, 2004

Visa bikarinn á laugardag KFS-Þróttur R. 

Á laugardag kl. 13 tekur KFS á móti Þrótti frá Reykjavík í 32-liða úrslitum Visa bikarsins. Þróttur leikur sem kunnugt er í 1. deild eftir að þeir féllu úr efstu deild í fyrra. Þetta verður vonandi hörku bikarleikur eins og þeir geta orðið bestir. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta á völlinn, en miðaverð á þennan leik er 1.000 kr. Allir á völlinn.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:56 //-


miðvikudagur, júní 09, 2004

Tindastóll-KFS 6-2 

KFS gerði sér ferð norður á Sauðárkrók í gær til að leika gegn Tindastóli, en þetta var leikur í 5. umferð. Hvorugu liði hafði tekist að vinna leik í deildinni í sumar þannig að það mátti búast við hörkuleik. Var spilað á glæsilegum velli þeirra Stólamanna, búið að taka allt í gegn fyrir landsmót UMFÍ í sumar. Hér fylgir umsögn Doktorsins um leikinn.
Þetta var þungur biti. Áætlun okkar í fyrri hálfleik tókst samt að mörgu leyti, spiluðum almennilegan fótbolta í 1. sinn í deildinni í sumar og sköpuðum fleiri færi en samanlagt í deildinni í sumar, held ég. Ákveðinn maður fór illa með þau og þeir komust í 1:0 þvert gegn gangi leiksins. Yngvi jafnaði síðan úr víti 1:1, en þeir náðu að skora rétt fyrir hálfleik 2:1. Varð svo að skipta einum besta manninum út af fljótlega í s. h., en menn börðust vel og reyndu að sækja. Þeir komust í 3:1, en aftur skoraði Yngvi úr víti, 3:2. Þar hefði einn Stólinn átt að fjúka út af, hvernig hefði farið þá? Þeir skoruðu síðan fljótlega 4:2 og þegar ca. 10 mín. voru eftir, gafst aftasta vörnin endanlega upp og hleypti inn 2 mörkum í restina, 6:2. Þetta var því ekki jafnslæmt og tölurnar segja, en úthald sumra ekki í lagi og breiddin ekki nægjanleg að þessu sinni. Sóknarleikurinn var loksins í lagi, en menn féllu í gamla gryfju og urðu of ákafir í honum, á kostnað varnarinnar, enda ætluðum við ekki að tapa þessum leik. Vörnin féll í gamla rangstöðugryfju í lokin og því fór sem fór. Loks kom Stefán Bragason á óvart með góðri frammistöðu á miðjunni. Víðir var veikur, Stebbi Hauks. meiddur, Jóhann Sveinn og Trausti He. að vinna, Hjalti Jó. einnig. Það var greinilega of mikið mannfall. Vil samt þakka peyjunum fyrir að leggja á sig erfiða ferð og fórna vinnu, allir voru að reyna sitt besta, sýndist mér, þótt sumir ættu slæman dag. Liðið: Gunnar Bergur, Valdi, Erlingur, fyrirliði, Davíð, Valli(Svenni), Trausti Hj., Stefán, Yngvi, Sæi; Víðar(Ívar), Siggi IV. Óðinn Steins. kom ekki inn á.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:47 //-


fimmtudagur, júní 03, 2004

KFS-Leiknir R. föstudag kl. 20 

Föstudaginn 4. júní tekur KFS á móti efsta liði 2. deildar, Leikni R. og verður leikið á Helgafellsvelli eins og vanalega. Leikurinn hefst kl. 20 og kostar 500 kr. fyrir 14 ára og eldri. Leiknir hefur unnið alla þrjá leiki sína en hefur enn ekki spilað á útivelli. Það verður því um hörkuleik að ræða og mikilvægt fyrir KFS að ná að sigra þennan leik. Vonumst eftir að sjá sem flesta sjóara á vellinum, en óskum sjóurunum í liðinu annars til hamingju með helgina sem er framundan.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:57 //-



KFS-Þróttur R. í 32-liða úrslitum Visa bikars 

Í dag var dregið um hvaða liða mætast í 32-liða úrslitum Visa bikarsins. Þar voru mættir Hjalti Jóhannesson og Stefán Bragason fyrir hönd KFS. Þar sem Hjalti er eldri og reyndari fékk hann að draga og dró hann nafn Þróttar frá Reykjavík, en þeir leika í 1. deild, féllu úr úrvalsdeildinni í fyrra. Stefán sagði að ef hann hefði fengið að draga hefði nú eitthvað meira spennandi komið upp úr hattinum. En þetta er ágætis dráttur. Leikurinn fer fram laugardaginn 12. júní og verður leikið á Helgafellsvelli og hefst leikurinn kl. 13. ÍBV leikur gegn Fjölni föstudaginn 11. júní á Fjölnisvelli.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:51 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008