|
miðvikudagur, júlí 21, 2004
Pétur Run lánaður til KFS
ÍBV hefur lánað Pétur Runólfsson yfir til KFS og mun leika með gegn Aftureldingu. Pétur er ekki alveg ókunnugur KFS en hefur leikið með okkur af og til. Pétur er boðinn velkominn og ljóst að það er mikill styrkur að fá hann í okkar raðir.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 00:30 //-
KFS heimsækir Mosfellinga í kvöld
Í kvöld, miðvikudag, leikur KFS gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ og hefst leikurinn kl. 20. Leikið er á Varmárvelli þeirra Mosfellinga. Hvetjum alla stuðningsmenn á Höfuðborgarsvæðinu að kíkja á völlinn og styðja við bakið á Eyjamönnum. Vonandi næst að fylgja eftir sigurleiknum á föstudag.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 00:27 //-
laugardagur, júlí 17, 2004
Loksins kom sigur hjá KFS í sumar í deildinni. Í gær tóku þeir á móti Víðismönnum og var leikið á Týsvelli við bestu aðstæður, þ.e. veðrið þó völlurinn hefði mátt vera betri. En menn voru ákveðnir í því að standa sig og berjast fyrir fyrsta sigrinum þetta árið. Enda kom það á daginn þegar leikurinn byrjaði að KFS ætlaði sér greinilega mikið í þessum leik. Það voru ekki liðnar nema um 5 mín. þegar Sindri Grétars. komst einn inn fyrir en þrumaði yfir markið. En hann var aftur á ferð á 10 mín. leiksins þegar fékk víti og skoraði að sjálfsögðu sjálfur úr henni af sinni alkunnu snilld, létt vippa í mitt markið. Enn liðu ekki nema nokkrar mínútur en þá fékk Yngvi laglega sendingu frá Jóhanni Sveini og hann átti ekki í vandræðum með negla boltann í netið. Staðan orðin 2-0 eftir aðeins 15 mín. leik. Eftir þetta dalaði aðeins leikur KFS og þegar um hálftími var liðinn af leiknum náðu Víðismenn að minnka muninn með laglegu skallamarki. Ekkert markvert gerðist fram að leikhléi og menn nokkuð sáttir þegar gengið var til búningsherbergja. Sindri Grétars. fékk að hvíla sig í seinni hálfleik en í stað hans kom Viðar þingvörður inná. KFS byrjaði síðari hálfleik líkt og þann fyrri af krafti og áttu hættulegri færi framan af. En Víðismönnum tókst að skora mark sem var dæmt af vegna rangstöðu, réttilega held ég. En áfram hélt baráttan og þegar um 15 mín. voru eftir af leiknum tók Stebbi Hauks á rás, eins og hann gerði nánast allan leikinn, og skoraði glæsilegt mark með góðu skoti yfir markmanninn. Síðan kom Sæþór inná, sendi boltann fram í sinni fyrstu snertingu, tók sprettinn upp völlinn og eftir smá klafs í vítateig Víðismanna barst boltinn út á Sæþór sem skoraði með sinni annarri snertingu í leiknum. Vænleg staða hjá KFS, en þegar um 4 mín. voru eftir af venjulegum leiktíma náðu Víðismenn að minnka muninn eftir að Gunnar hafði lent inni í markinu með boltann í höndunum. Þar við sat og fyrsti sigur KFS í 2. deild þetta árið staðreynd. Nú er erfitt prógram framundan hjá KFS, þrír útileikir í röð á sex dögum, fyrst gegn Aftureldingu, þá gegn KS og síðan gegn Leikni R. Næsti heimaleikur er ekki fyrr en helgina eftir þjóðhátíð.
Liðið: Gunnar, Jóhann Sveinn, Stebbi Braga, Sindri V., Hjalti J. (Valdi), Trausti (Sæþór), Siggi V, Yngvi, Davíð, Stebbi H., Sindri G. (Viðar)
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 10:39 //-
fimmtudagur, júlí 15, 2004
KFS-Víðir á Týsvelli á föstudag kl. 20
Fyrsti leikur KFS í síðari umferð 2. deildar er gegn Víði á morgun, föstudag. Verður leikið á Týsvelli og hefst leikurinn kl. 20. KFS hefur ekki enn tekist að vinna leik en vonandi tekst það á morgun. Vonandi láta sem flestir sjá sig og styðja við bakið á KFS í baráttunni sem framundan er. Frítt á völlinn.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 18:28 //-
föstudagur, júlí 09, 2004
KFS leikur gegn ÍR í kvöld
Í dag heldur KFS til Reykjavíkur og leikur gegn ÍR á ÍR-velli. Hefst leikurinn kl. 20 og hvetjum við alla Eyjamenn á Höfuðborgarsvæðinu að kíkja á leikinn.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 09:27 //-
Hjalti hlýtur styrk frá ÍSÍ
Við úthlutun þjálfarastyrkja frá ÍSÍ nú nýverið, hlaut Hjalti styrk uppá 25.000 kr. Alls bárust 37 umsóknir en veittir voru 14 styrkir. Hjalti hyggst nýta þennan styrk til að sækja KSÍ VI þjálfaranámskeið sem haldið verður í Englandi í haust. Til hamingju með þetta Hjalti.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 09:21 //-
Bæði Palli og Steingrímur farnir aftur í ÍBV
Páll Hjarðar og Steingrímur Jóh. náðu að spila einn leik fyrir KFS, en þeir fóru báðir aftur yfir í ÍBV fyrir bikarleikinn gegn Stjörnunni. Er Páli þakkað sérstaklega fyrir að halda Gunnari Bergi félagsskap á leiðinni norður og Steingrími fyrir að halda uppi stemningu aftur í.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 09:19 //-
|