Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



þriðjudagur, ágúst 31, 2004

Kostnaðarsöm 2. deild að ári 

Nú er undanúrslitum lokið í 3. deildinni og ljóst að tvö lið að austan fara upp, Fjarðarbyggð, eftir margar tilraunir og Huginn Seyðisfirði. Þá verða Leiftur/Dalvík og Tindastóll í 2. deild að ári. Hugsanlega er Völsungur að falla niður í 2. deild, en þeir fóru upp í fyrra og ef KS kemst ekki upp úr 2. deild, þá verður þetta þannig að af 10 liðum verða fjögur að norðan og tvö að austan. Alveg ljóst að sú skipan hefði farið langt með að koma KFS á hausinn ef þeir væru áfram í 2. deild. KSÍ á verk fyrir höndum að raða niður leikjum svo öllum líki á næsta ári.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:35 //-



KFS leikur í 3. deild að ári 

Það varð endanlega ljóst á laugardaginn var að KFS myndi leika í 3. deild að ári. Þá var leikið gegn Víkingum á Ólafsvík og hefði sá leikur þurft að vinnast og leikur ÍR og Víðis að fara jafntefli. Sá leikur fór reyndar jafntefli en KFS tapaði 1-0 á Ólafsvík. En það er ein umferð eftir í deildinni og er hún mjög spennandi. Í henni verða þrír mjög spennandi leikir, en þrjú lið eiga enn möguleika á að komast upp og tvö lið geta fallið með KFS. KFS leikur gegn ÍR og ef KFS vinnur þann leik og Víðir annað hvort vinnur sinn leik eða gerir jafntefli fellur ÍR, en ÍR og Víðir eru jöfn að stigum í 8. og 9. sæti. Á toppnum er Leiknir og KS með 38 stig og Víkingur Ó. með 36 stig. Leiknir og Víkingur leika saman og ljóst að sigurvegarinn í þeim leik fer upp í 1. deild. Ef KS vinnur Víði, fellur Víðir og KS fer væntanlega upp. Síðasta umferðin verður leikin á sunnudag og hefjast allir leikirnir kl. 14. Sem fyrr segir tekur KFS á móti ÍR á Helgafellsvelli.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:21 //-


föstudagur, ágúst 27, 2004

Ferðalagið á laugardag 

Planið er að fljúga til Reykjavíkur kl. 10 á laugardagsmorgun, mæting 9:30. Ef ekki viðrar til flugs er það Herjólfur. Vakna snemma og gá til veðurs, en Hjalti verður á vaktinni og tékkar á veðrinu snemma. Ef einhver fæst til að skutla mönnum á Selfoss um kvöldið verður flogið þaðan heim aftur. Annars í hádeginu á sunnudag, ef ekki vill betur er það Herjólfur þá.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 01:11 //-


laugardagur, ágúst 21, 2004

KFS-Leiftur/Dalvík 3-2 

Loksins kom aftur sigur hjá okkur í KFS. Í dag tókum við á móti Leiftri/Dalvík (LD) í þvílíkri blíðu og á flottum Helgafellsvelli. Eins og venjulega eru alltaf smá breytingar á leikmannahópnum milli leikja og var svo einnig nú. Jóhann Sveinn og Viðar þingvörður spiluðu m.a. ekki með í dag. Valgeir kom inn í liðið eftir langa fjarveru og átti stórleik, en nánar að því síðar. Það var ljóst fyrir leik að ef sigur næðist í dag, þyrftu önnur úrslit að vera okkur í hag til að von um áframhaldandi sæti í 2. deild að ári lifði.
Og það var ljóst strax í upphafi leiks að leikmenn KFS voru mun ákveðnari en þeir hjá LD. Strax á upphafsmínútunum fengum við nokkur færi. Fór það svo að eftir aðeins um 5 mín. leik tókst Sigga Inga að skora eftir að Davíð hafði skallað boltann áfram eftir langt innkast. Áfram héldu KFS að sækja og sköpuðu sér fullt af færum, nokkur dauðafæri sem ekki tókst að nýta. Var gaman að sjá hvað boltinn barst fljótt á milli manna, oft einnar snertingar bolti. Þá voru kantmennirnir, Sæþór og Stebbi Hauks með sína frægu spretti og Siggi Ingi fremstur pressaði vel á þeirra öftustu menn. LD náði ekki að skapa sér nein hættuleg færi í fyrri hálfleik, fengu tvær aukaspyrnur rétt fyrir utan teig sem þeim tókst ekki að nýta sér.
Í síðari hálfleik var það sama uppi á teningnum, KFS hélt áfram að sækja og í einni sókninni á 51 mín. barst boltinn út til Valgeirs rétt fyrir utan vítateig sem svona líka smellhitti boltann og gjörsamlega klíndi boltann í samskeytin fjær, algjörlega óverjandi fyrir markmann LD. Fékk Valli skömmu seinna heiðursskiptingu búinn að skila sínu í þessum leik. En eftir þetta fóru leikmenn LD að sækja meira og á þriggja mínútna kafla tókst þeim að jafna leikinn. Ekki laust við að Gunnar Bergur hafi fengið sínar svartsýnustu hugsanir um úrslit þessa leiks í kjölfarið (ekki það að mörkin hafi verið honum að kenna). Skömmu seinna sluppu leikmenn LD einir inn fyrir en Gunnar varði glæsilega í markinu. En eftir þetta sóttu leikmenn KFS meira og aðeins um 5 mín. eftir jöfnunarmarkið náði Pétur Run að koma KFS yfir eftir laglega fyrirgjöf frá Ganna, þó Davíð hafi viljað eiga markið skrifast það á Pétur. Og áfram hélt baráttan og KFS sóttu meira og voru enn að skapa sér dauðafæri sem ekki tókst að nýta. En lokatölur leiksins 3-2 sigur hjá KFS. Ekki má gleyma þætti AKFS (aðdáendaklúbbnum) en þó þeir hafi bara verið tveir í dag voru þeir með trommur og létu þeir vel í sér heyra og er vonandi að þeir haldi þessu áfram. Heyrist meira í þeim en öllum áhorfendum á ÍBV leikjum. Miðað við önnur úrslit í dag má telja möguleika KFS á að halda sér uppi stjarnfræðilega litla, því miður. En tveir leikir eftir af mótinu og það á ekkert að gefa þá, næst er það á Ólafsvík gegn Víkingi á laugardag kl. 16.
Liðið: Gunnar, Stebbi, Sindri V., Trausti, Valli (Ganni), Yngvi, Pétur, Davíð, Stebbi H. (Valdi), Sæi, Siggi I.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:26 //-



Fækkar í hópnum í Eyjum 

Nú þegar sumri fer að halla fara þeir strákar sem eru í skóla í Reykjavík að flytja sig yfir hafið. Þannig að nú fækkar í hópnum í Eyjum og allir gamlir og góðir leikmenn KFS boðnir velkomnir á æfingar, þannig að það sé nú hægt að halda uppi dampi á æfingum.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:23 //-


fimmtudagur, ágúst 12, 2004

Slæm staða KFS í deildinni 

Það má segja að staða KFS í 2. deild sé mjög slæm, liðið í neðsta sæti með einungis 6 stig en næsta lið fyrir ofan, Víðir, er með 13 stig. Nú eru fjórir leikir eftir og ekkert nema kraftaverk getur bjargað liðinu frá falli í 3. deild. En kraftaverkin gerast enn og þó heilladísirnar hafi ekki verið með okkur í sumar, þá held ég að þær hafi borist hingað nýlega með þessu hlýja loftslagi sem er yfir okkur núna. Áfram KFS.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 00:21 //-



Rólegheit á síðunni 

Þar sem ég er búinn að vera í sumarfríi þá hefur lítið verið skrifað á síðuna eins og kannski einhver hefur tekið eftir. En þeim mun líflegri umræður á spjallinu í staðinn og er það ekkert nema gott sem þar fer fram. Vonandi heldur það áfram. En nú fara væntanlega að detta inn fréttir mun tíðar en verið hefur.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 00:09 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008