Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



föstudagur, september 24, 2004

Slúttið á morgun - upplýsingar 

Ýmsar mikilvægar upplýsingar fyrir slúttið:
Hvar: í Glerskálanum í Drífanda (Hótel Eyjar) og er gengið inn að norðan.
Hvenær: byrjum kl. 20:00, matur um 20:30
Matur: Svín og kjúklingur ásamt ýmsu gómsætu meðlæti og léttu nasli milli rétta.
Drykkir: já, eins og menn geta í sig látið, en þurfa þó að mestu að koma með þá sjálfir, enginn bar á staðnum.
Kostar: 1.500 kr. á manninn (ræðan innifalinn í verðinu), ekkert kortavesen bara cash

Þá mun Reykjavíkurakademía KFS vera að undirbúa eitthvað svakalegt atriði. Þá er hugsanlegt að Spýtan hringi inn atriði, en óvíst er að hann komist.
Endilega látið mig vita sem ekki eru búnir að því, hvort þið mætið ekki.



-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 01:32 //-


sunnudagur, september 19, 2004

Slúttið laugardaginn 25. september í glerskálanum 

Nú er búið að finna stað fyrir okkur og ætlum við að slútta í glerskálanum í Drífanda (Hótel Eyjar) og skemmta okkur þar yfir mat og drykk. Flautað verður til leiks kl. 20:00 Mat ætlum við að hafa á boðstólnum og hugsanlega einhverja drykki og fyrir fátæka námsmenn verður verðinu stillt í hóf, 1.500 kr. á manninn (konur eru líka menn), óbreytt frá fyrra ári. Hvet alla að láta sjá sig. Að lokum skunda síðan þeir sem vilja á ball í Höllinni. Þeir sem ætla að mæta láti mig vita í s. 844-3023 eða á odi@eyjar.is eða melda sig inn á spjallinu. AKFS mun verða með eitthvað sprell og svo geri ég ráð fyrir að Sæþór verði með myndavélina á lofti.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 10:42 //-


þriðjudagur, september 07, 2004

Slútt 25. september 

Hugmyndin er að slútta 25. september nk. og er AKFS með málið. Skilst að það sé einhver stórhljómsveit í Höllinni þannig að ætti að geta verið fínt kvöld. Á eftir að finna stað undir hópinn en það ætti nú allt að hafast. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 20:53 //-



KFS-ÍR 2-3 

Þá er þessari knattspyrnuvertíð lokið, en á sunnudag tók KFS á móti ÍR í hreint magnaðri lokaumferð í 2. deildinni. KFS hefði með sigri getað tekið ÍR með sér í 3. deild að ári. Það var greinilegt að mikið var lagt í sölurnar hjá ÍR, voru meira að segja með stuðningsmenn með sér, sem reyndu allt hvað þeir að gátu að múta Gunnari Bergi markverði þegar þau voru að bíða á Bakkaflugvelli. En Gunnar er svo múraður maður að hann þurfti ekki á neinum aukagreiðslum að halda, þannig að ekki tókst það hjá ÍR.
KFS var ekki með hefðbundna liðsuppstillingu í þessum leik, en Sindri Viðarsson markamaskína (að eigin sögn) var settur á miðjuna og ætlaði sér að skora mark á þessu tímabili. Þá var Jóhann Sveinn afturliggjandi miðjumaður og Hjalti Jóh. var mættur aftur og spilaði sem miðvörður ásamt Stebba Braga. Leikurinn byrjaði fjörlega og var greinilegt að ÍR ætlaði sér sigur í þessum leik, þeir börðust vel en það gerðu leikmenn KFS einnig. En eftir aðeins um 8 mín. leik voru ÍR búnir að skora mark, en eftir það sótti KFS meira og var Sindri þar fremstur í flokki en hann átti nokkur skot að marki, en ekki tókst honum að skora. Þrátt fyrir að fá ein tvö dauðafæri í fyrri hálfleik tókst KFS ekki að jafna leikinn. Staðan því 0-1 í hálfleik. Varamenn héldu síðan mikla sýningu í leikhléi, þó sérstaklega formaðurinn.
Í síðari hálfleik var það sama á ferðinni, en eftir aðeins um 10 mín. leik sluppu ÍR upp hægri kantinn og náðu að skora sitt annað mark. En aðeins nokkrum mínútum seinna náði hinn stormsenterinn í liðinu, Jóhann Sveinn að skora glæsilegt grísamark af 40 metra færi, en markmaðurinn hafði brugðið sér í lautarferð, annan leikinn í röð skilst okkur. Hans fyrsta mark í sumar. Skömmu seinna náði Davíð Egils að skora sitt fyrsta mark í sumar eftir góða sendingu frá Ganna, eftir að boltinn hafði farið yfir allan pakkann eftir hornspyrnu frá Sæþóri. Nú var farið að fara um ÍR en staðan í leik Víðis og KS var 1-0 sem þýddi að ÍR var á leið í 3. deild. Nú héldu menn að KFS næði að krækja í sigur, en ekki liðu margar mínútur áður en ÍR tókst að komast yfir 3-2. Enn voru um 20 mín. eftir af leiknum má segja að aðstandendur ÍR hafi verið orðnir stressaðir yfir gangi mála. En lokatölur urðu þessar, 3-2 og með sigri tryggði ÍR sér veru í 2. deild að ári, en Víðir féll niður í 3. deild. Á toppnum gerðust þau tíðindi að Leiknir sem búið er að vera í efsta sæti í allt sumar, tapaði síðasta leiknum fyrir Víkingi Ó. og við það misstu þeir af sæti í 1. deild, en Víkingur og KS fóru upp. Eitt norðan lið upp en hugsanlega koma Völsungar aftur niður í 2. deild. Þá gerðust þau merku tíðindi að feðgar léku saman í þessum leik, en Hjalti kom inná rétt í lokin og náði nokkrum mín. með Trausta. Þá léku bræðurnir Hjalti og Sæþór Jóh. allan leikinn. Helstu tíðindi leiksins voru að Sindri náði ekki að skora og þar með ekkert í sumar, þrátt fyrir nokkrar góðar tilraunir í leiknum. En ég vil þakka leikmönnum og stuðningsmönnum fyrir sumarið en menn voru að leggja mikið á sig í sumar, bæði í sambandi við vinnu og ferðalög. Þá er AKFS sérstaklega þakkað, en þeir hafa verið pantaðir á bikarúrslitaleik ÍBV og Vals um næstu helgi, þannig að hróður þeirra berst víða.
Liðið: Gunnar, Hjalti, Stebbi Braga, Valdi, Ganni (Svenni), Jóhann, Davíð (Hjalti K.), Sindri, Stebbi H., Sæþór, Siggi I. (Trausti)


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 20:23 //-


laugardagur, september 04, 2004

KFS-ÍR á Helgafellsvelli sunnudag kl. 14 

Á morgun fer fram síðasta umferðin í 2. deild, en þá tekur KFS á móti ÍR. Þessi síðasta umferð er mjög spennandi bæði á toppi og botni. Þrjú lið berjast um sæti í 1. deild að ári og þrjú lið geta farið niður í 3. deild með KFS. Leikurinn á morgun fer fram á Helgafellsvelli og hefst hann kl. 14. Heyrst hefur að Sindri Viðars ætli sér að skora á morgun, en elstu menn muna ekki eftir marki frá honum. Þá verður Yngvi í leikbanni og spurning hvort Stebbi Hauks taki markakóngstitilinn af Yngva, en til þess þarf hann að skora þrennu á morgun. Þá hvíslaði því að mér lítil fluga að Gunnar Bergur ætli ekkert að tjá sig í leiknum á morgun. Þannig að ég hvet áhorfendur til að mæta á völlinn og verða hugsanlega vitni að sögulegum viðburðum.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 13:56 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008