Framherjar spiluðu í dag í 3. deild Íslandsmóts innanhúss. Má segja að allt hafi gengið upp sem þurfti að ganga upp. Fyrsti leikurinn gegn Neista D. vannst 6-1 með mörkum frá Stebba Hauks, Davíð, Sigga Inga, Dudek, Styrmi og Stebba Braga. Í öðrum leiknum gegn BÍ lentu Framherjar 0-3 undir en náðu að minnka muninn í 1-3 fyrir leikhlé með marki frá Stebba Hauks. Í síðari hálfleik náðu Framherjar að klára leikinn og vannst hann 4-3 með mörkum frá Hjalta Einars, Styrmi og Stebba Hauks. Tveir sigrar og útlitið nokkuð gott. Fyrir síðasta leik á móti Ægi var ljóst að Framherjar máttu tapa með tveimur mörkum til að lenda í fyrsta sæti. Það leit ekki vel út á tímabili, Ægir komst í 0-3, svo minnkaði Siggi Ingi muninn í 1-3, þeir skoruðu 1-4 en Davíð Egils skoraði annað mark Framherja á síðustu mínútunni og leikurinn fór 2-4. Semsagt tveggja mark tap og eins og mátti. Síðasti leikurinn í riðlinum var leikur Neista D. og BÍ og þurfti BÍ að vinna með fimm mörkum til að ná fyrsta sætinu af Framherjum. BÍ komst í 5-0 og útlitið ekki gott fyrir Framherja, en Neisti minnkaði í 5-1 en BÍ skoraði þá aftur 6-1 en á síðustu mínútu skoraði Neisti og leikurinn endaði 6-2. Þar með var ljóst að Framherjar héldu fyrsta sætinu, með sömu markatölu og BÍ en fór upp á innbyrðis viðureign. Tæpara gat það ekki verið. Stebbi Hauks var markahæstur með 3 mörk. Til hamingju með þetta strákar.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 01:14 //-
Á morgun, sunnudag, keppa Framherjar í Íslandsmótinu innanhúss og er spilað í Austurbergi. Fyrsti leikur Framherja er gegn Neista Djúpavogi og byrjar kl. 10:23. Síðan er það gegn BÍ kl. 11:55 og síðasti leikur gegn Ægi kl. 13:04. Hvet alla að mæta og kíkja á strákana. Hjalti Einars er búinn að lofa eins marki og hann skoraði gegn FC Iceland um daginn. Eitthvað sem enginn má missa af.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 11:07 //-
Búið er að breyta æfingatímunum okkar þannig að tímarnir á fimmtudögum falla niður og í staðinn verður við á föstudögum á sama tíma í sama sal, þ.e. kl. 20:30 og byrjar þetta næsta föstudag. Þannig að tímarnir eru þá á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 20:30 alltaf í nýja salnum.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 11:14 //-
Framherjar leika sem kunnugt er í 3. deildinni innanhúss og verður leikið sunnudaginn 14. nóvember í íþróttahúsinu Austurbergi. Leikjaniðurröðunin er sem hér segir:
kl. 10:23 Framherjar - Neisti D.
kl. 11:55 BÍ - Framherjar
kl. 13:04 Framherjar - Ægir
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:39 //-
Nú í lok október samþykkti stjórn KSÍ nýja reglugerð fyrir innanhússknattspyrnu og verður byrjað að leika eftir þessari nýju reglugerð nú 14. nóvember þegar Framherjar leika í 3. deild. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Varamönnum er fjölgað úr 6 í 7.
- Skylda er að vera með legghlífar.
- Fjarlægð varnarmanna í aukaspyrnum er færð úr 3 metrum í 5 metra.
- Flokkaskipting er aðlöguð að nýjustu breytingum.
- Tímalengd brottvísunar er stytt.
- Óheimilt er að skora úr upphafsspyrnu.
- Markvörður má nú kasta knettinum yfir miðju.
- Ákvæðum varðandi markvörð hefur verið breytt á þá veru að eftir að hann hefur kastað knettinum í leik er honum óheimilt að snerta knöttinn að nýju nema knötturinn hafi farið yfir miðju eða hann hafi verið snertur af andstæðingi. Í 5. aldursflokki og yngri flokkum eru undanþáguákvæði varðandi markvörðinn.
Verður gaman að sjá hvort þessar breytingar munu hafa mikil áhrif á leik liðanna. Reglugerðina í heild sinni má lesa
hér.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:28 //-