Stjórn KFS vill senda leikmönnum og fjölskyldum þeirra sem og öllum velunnurum félagsins bestu jóla- og nýárskveðjur með þakkir fyrir samstarfið og samveruna á árinu sem er að líða. Vonandi verður næsta ár happadrjúgt fyrir okkur.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 10:44 //-
Búið er að draga í riðla í Deildarbikarnum og má segja að KFS hafi lent í nokkuð erfiðum riðli. Liðin sem drógust með okkur í riðil eru Víkingur Ó., Leiknir R., Njarðvík, Víðir og Árborg. Leikjaniðurröðun er ekki komin á hreint, en líklegt er að byrjað verði að spila um miðjan mars. Leikin er einföld umferð og fara efstu liðin í hverjum riðli áfram í úrslitakeppni, en riðlarnir eru fjórir.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:50 //-
Nú er búið að stofna greiðsluseðsla á þá aðila sem erfiðast hefur verið að ná í hvað varðar skuldir í getraunum, en sumar af þessum skuldum eru orðnar mjög gamlar. Er vonast til að menn greiði þetta samviskusamlega því Hjalti er búinn að leggja út fyrir þessum fjárhæðum. Eins og menn vita þá eru tekjur af getraunasölu það sem heldur félaginu á floti og er vonast til þess að þetta fáist greitt.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 10:40 //-
Smástund lék í gær í Íslandsmótinu innanhúss, en þeir voru í 2. deild. Ekki var ljóst fyrr en á leikdegi hvaða leikmenn gætu spilað og olli það töluverðum vandræðum. Meðal annars var fenginn markmaður sem spilaði síðast með Völsungi fyrir ca. 5 árum þar sem markmenn okkar áttu ekki heimangengt. En liðið spilaði þrjá leiki, fyrsti leikur gegn Aftureldingu tapaðist 4-1, annar leikurinn gegn KS tapaðist 5-3. Þriðji leikurinn var úrslitaleikur fyrir bæði lið um hvort þeirra félli. Var það gegn ÍH og vannst sá leikur 6-5. Nokkrir yfirburðir í þeim leik þó lokatölur gefi það ekki til kynna. Þar með var ljóst að Smástund héldi sæti sínu í 2. deild. Framherjar tryggðu sér sæti í 2. deild um daginn og verður fróðlegt að sjá á næsta ári hvort liðin lendi saman í riðli eins og gerðist fyrir nokkrum árum.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:41 //-