Deiglan, sem átti að spila í C. riðli 3. deildar í sumar hefur dregið sig úr keppni. Af þeim sökum hefur Augnablik verið fært úr B.riðli yfir í C. riðil. KFS leikur í B. riðli og átti að leika fyrsta leikinn gegn Augnablik hér heima. Fyrsti leikur KFS verður því á Hornafirði gegn Sindra þann 28. maí. Má því segja að KFS sitji hjá í fyrstu umferð 3. deildar. Síðan í júlí kemur góð pása en þá átti að seinni leikurinn gegn Augnabliki að fara fram.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:08 //-
Jæja, þá er loksins einhver frétt skrifuð hér inn. Verið frekar rólegt yfir fréttaskrifum hér á forsíðunni en þeim mun líflegra verið á spjallinu. Vonandi heldur það áfram.
En KFS hefur lokið keppni í Deildarbikarnum og endaði þar í 4. sæti í sínum riðli með tvo sigra og þrjú töp. Síðan hafa nokkrir æfingaleikir verið spilaðir með misjöfnum árangri, en gott að fá þessa leiki því mikil endurnýjun er að eiga sér stað í leikmannahópnum. Mikið af ungum leikmönnum sem hafa verið að prófa að æfa með okkur og einhverjir verið prófaðir í Deildarbikarnum og í þessum æfingaleikjum. Þannig að það verður spennandi að sjá í sumar hvernig þessir leikmenn koma út.
En fyrsti leikur Íslandsmótsins verður á heimavelli gegn Augnabliki og er hann mánudaginn 23. maí nk. Í riðli með KFS eru mörg lið sem eru okkur kunnug, en liðin eru Augnablik, Árborg, Hamar, Reynir S., Sindri, Ýmir og Ægir. Við höfum spilað á móti flestum af þessum liðum og verður forvitnilegt að sjá hvernig frammistaðan verður í sumar. En nú er grasið byrjað að grænka og því leikmenn KFS væntanlegir á útiæfingar mjög fljótlega.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:47 //-
Ólöglegir leikmenn í Deildarbikarnum
02.05.2005
Í samræmi við lið 10.2 í
reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að
Eyþór Jónsson og
Ingimar Finnsson léku ólöglegir með liði Árborgar gegn KFS í Deildarbikarnum í
leik sem fram fór 23. apríl síðastliðinn. Úrslit leiksins standa þó óbreytt, 4-1 KFS í vil.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:45 //-