Á morgun leikur KFS mikilvægan leik í 3. deild, en þá tekur liðið á móti Reyni Sandgerði. KFS er sem stendur í 2. sæti riðilsins en Reynismenn í 4. sæti. Það er mikilvægt fyrir KFS að sigra þennan leik til að halda sér á meðal tveggja efstu liða, en tvö efstu liðin fara í úrslitakeppnina. Leikurinn fer fram á Helgafellsvelli og hefst kl. 20. Allir að mæta
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 13:08 //-
Fyrsti heimaleikur KFS í 3. deild fór fram í dag á Helgafellsvelli í blíðskaparveðri. Það voru Ægismenn frá Þorlákshöfn sem komu í heimsókn til okkar. Ægismenn voru efstir í riðlinum eftir tvo leiki, en KFS hafði spilað einn leik og unnið hann. Ægir er sennilega eitt af liðunum sem kemur til að berjast um sæti í úrslitakeppninni þannig að það var ljóst að það þýddi ekkert annað en að berjast í dag.
Leikurinn byrjaði nú frekar rólega og engar stórsóknir litu dagsins ljós fyrstu mínúturnar. En það var á 11. mín. sem Maggi Steindórs (rauðhaus) skoraði laglegt mark eftir góða fyrirgjöf frá Yngva. Eftir þetta var KFS meira með boltann en Ægismenn náðu nú samt að jafna leikinn á 27. mín eftir klaufagang í vörn KFS. Eftir þetta var frekar jafnt á með liðunum en KFS skapaði sér fleiri færi. Það var svo á síðustu mínútu fyrri hálfleiks að Maggi skoraði öðru sinni og kom KFS yfir.
Hálfleiksræða Hjalta var nú öll á rólegu nótunum enda leikmenn búnir að spila ágætlega. Seinni hálfleikur var nú öllu fjörugri en sá fyrri enda litu sex mörk dagsins ljós í honum. Það fyrsta skoraði Yngvi (rauðhaus) eftir að hafa komist einn í gegn eftir góða sendingu frá Heimi tannsa. Yngvi var svo aftur á ferðinni 10 mín. seinna með laglegt mark, en í millitíðinni skoraði Kiddi Gogga (rauðhaus) glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu. Staðan orðin 5-1 og óhætt að bæta við rauðhausum í liðið og var því Valla skipt inná. Hann skoraði úr vítaspyrnu undir lok leiksins við mikinn fögnuð. En rétt áður hafði Ægismönnum tekist að minnka muninn eftir kæruleysisgang í vörn KFS. En glæsilegur sigur 6-2 og öll mörk KFS skoruð af rauðhausum og greinilegt að það er inn í dag að vera rauðhaus. Siggi Braga átti innkomu en var hvað eftir annað að reyna að fitta í gegn en gekk lítið, átti þó ágæta spretti inn á milli. Þá spilaði Valur Smári sinn fyrsta leik fyrir KFS í dag og stóð sig alveg ágætlega. Efnilegur strákur þar á ferð.
Nú stendur yfir leit að rauðhærðum leikmönnum til að stilla upp fyrir næsta leik. Líklegir í byrjunarliðið næst gætu verið: Jenni rauði, Maggi rauði, Yngvi rauði, Kiddi rauði, Valli rauði, Maggi Sig rauði, Kiddi (bróðir hans) rauði.
Liðið í dag: Hannes, Sindri V., Stebbi Braga, Siggi Ingi (Valli), Yngvi, Heimir (Addi), Halli kantur (Valur Smári), Kiddi Gogga, Trausti (Tryggvi), Maggi skó, Stebbi Hauks (Siggi Braga)
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 17:19 //-