Þá er búið að negla stað og stund fyrir lokhóf KFS. Verður haldið á Café Kró (niður við höfn) á laugardag 10. sept.
Húsið opnar kl. 19:30.
Matur og eitthvað að drykkjum í boði, skemmtiatriði (bíómynd) og Formaðurinn verður með töfrabrögð.
Stjórinn heldur ræðuna á Búlgörsku þetta árið.
Gunnar Bergur sýnir bjargsig og Gunnarsig.
Dúdek lætur kné fylgja kviði.
Þá verða Stebbi Hauks og Sigurður Ingi með eins hárgreiðslu þetta árið.
Þar sem félagið er enn að reyna að ná niður skuldum verðum við að rukka inn, kr. 1.500 á manninn. Ætti ekki að drepa neinn en kannski særa suma!!
Svo skunda allir á ball í Höllinni á Vini Vors og Blóma (VV&B).
Allir að mæta. (Alli líka).
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 12:55 //-