Hinn síungi markmaður Birkir Kristinsson hefur ákveðið að leika með KFS í sumar, en Birkir meiddist sem kunnugt er síðasta sumar er hann lék með ÍBV. Vinnan hjá Birki tekur alltaf meira og meira af hans tíma og hann sagðist ekki vilja spila í efstu deild nema geta einbeitt sér 100% að því verkefni. Birkir hyggst alla vega leika með KFS í útileikjum liðsins og hugsanlega einhverjum heimaleikjum ef tími vinnst til. Birkir hefur ekkert leikið knattspyrnu eftir að hann meiddist en sagði að hann væri allur að koma til: "Ég er ekkert farinn að skutla mér ennþá en karlinn er alltaf í fínu formi og ég hlakka bara til að fá að spreyta mig með hinu Eyjaliðinu í sumar. Ég mun æfa með Eyjapeyjunum sem eru að æfa með KFS hér í Reykjavík og það þýðir ekkert dútl þegar ég mæti,"sagði Birkir og ekki laust við að maður fyndi fyrir smá tilhlökkun í rödd hans. Þetta eru að sjálfsögðu frábærar fréttir fyrir okkur í KFS og hann mun eflaust miðla að sinni miklu reynslu til okkar ungu leikmanna. Koma Birkis til KFS mun styrkja liðið mikið í baráttunni um sæti í 2. deild að ári. Alveg ljóst að liðin sem við keppum við á útivelli geta farið að skrúfa upp miðaverðið á leikjum sínum gegn okkur. Til hamingju með þetta strákar.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 11:10 //-