Þá er að koma að fyrsta leik KFS í sumar, en á laugardag tökum við á móti Ægi frá Þorlákshöfn í bikarkeppninni. Hefst leikurinn kl. 17 og verður leikið á Hásteinsvelli. Verður spennandi að sjá hvernig liðið nær saman en leikmenn hafa verið að æfa á tveimur stöðum, í Eyjum og í Reykjavík. Verður þetta fyrsti leikurinn í Eyjum í opinberu móti þetta árið, en ÍBV á leik á sunnudag. Eru Eyjamenn hvattir til að mæta á leikinn á laugardag og hvetja KFS. Frítt er á leikinn. Sigurvegarinn úr þessum leik leikur aftur á fimmtudag gegn Selfossi á Selfossi í næstu umferð bikarkeppninnar.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:30 //-