Leikurinn gegn KV sem vera átti á laugardag hefur verið settur á kl. 20:15 í kvöld á Helgafellsvelli. Allir að mæta og styðja KFS.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 15:44 //-
Leiknum hefur verið frestað og verður leikið á morgun sunnudag og hefst leikurinn kl. 19:30. Leikið verður á Helgafellsvelli.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 16:50 //-
Á morgun, laugardag, tekur KFS á móti KV, Knattspyrnufélagi Vesturbæjar. Hefst leikurinn kl. 13 og verður á Helgafellsvelli. KFS hefur tapað báðum sínum leikjum en KV náð einu jafntefli og tapað einum. Það varður því um mikilvægan leik að ræða fyrir bæði lið. Síðar um daginn tekur ÍBV síðan á móti hinu stórveldinu í Vesturbænum, KR og hefst sá leikur kl. 16. Hátíðarhöld sjómannadagsins verða á sama tíma og leikur KFS en við vonum samt að stuðningsmenn sjái sér fært að mæta á völlinn og hvetja okkar menn. Siggi Braga býður öllum frítt á völlinn, takk fyrir það Siggi!!
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 21:23 //-