Jæja drengir. Þá fer loksins að skýrast hvernig þetta á að vera á laugardaginn. Margir bíða óþreyjufullir eftir upplýsingum. Heyrist á mönnum að það gæti orðið fantafín mæting. Annars koma hér helstu upplýsingar:
Verður á Kaffi Kró (sama og í fyrra)Húsið opnar 19:30 - matur ekki seinna en 20:30Sjónvarpskokkurinn og kantmaðurinn snöggi
Einar Björn kokkar í okkur tvenns lags steikur
Eitthvað að drekka með matnum
21:30 Glænýtt KFS myndband frumsýnt22:07 Doktorinn frumflytur gjænýja ræðu22:53 Verðlaunaafhendingar fyrir afrek sumarsins23:17 Önnur málKannski detta inn óvænt atriði. Enginn ábyrgð tekinn á að tímasetningar haldi.
Að lokum skunda allir/öll á ball.
Með hjálp góðra manna og kvenna hefur tekist að halda verðinu í lágmarki. Verð fyrir 0ll þessi ósköp er aðeins
1.000 kr. á manninn (fyrir utan ballið) sem er náttúrulega næstum því algjört grín. Já aðeins 1.000 kr. (híhíhíhí).
Vonandi sjá flestir sér fært að mæta sem hafa verið að spila í sumar eða verið í kringum liðið (td. AKFS). Kempur fyrri ára velkomnar.
Væri samt ágætt að fá að vita ef þið mætið, látið mig vita á odi@eyjar.is eða í s. 844-3023 þannig að ég hafi ca. töluna.
ÁFRAM KFS
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 22:27 //-