Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



laugardagur, mars 31, 2007

KV 2-1 KFS 

Leik KV og KFS lauk 2-1 fyrir KV mönnum. Leikurinn byrjaði kröftuglega en í fyrri hálfleik voru 2 rauð spjöld og eitt mark. Einum leikmanni úr hvoru liði var vísað af velli eftir um það bil 30 mín leik og KV náði að skora eina mark hálfleiksins. Í hálfleik var farið yfir stöðu mála og KFS kom sterkara til leiks í seinni hálfleik.

Náði Anton Rafn að jafna metin með glæsilegri bakvarðsspyrnu, eftir hornspyrnu en hægt er að sjá mynd af markinu, hérna í myndasyrpunni. Eina vandamálið er að Stjórinn sjálfur ákvað að standa upp af bekknum og var því fyrir myndinni, en það er hægt að sjá Stjóran, leikmann KV reyna að bjarga markinu og boltan sjálfan í netinu. Myndin af marki KFS er hérna neðst í þessari frétt. Leikurinn var svo allur í járnum en á lokamínutum leiksins fengu KV menn aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, þar sem markvörður KFS varði glæsilega í slána en KV menn voru fljótari að átta sig, fylgdu eftir og skoruðu sigurmarkið. KFS reyndu hvað þeir gátu að jafna metin en 2-1 ósigur staðreynd. Næsti leikur er svo við Augnablik, þann 15 apríl á Stjörnuvelli.

Ég var með myndavélina mína á vellinum og er hægt að skoða myndirnar með því að smella hérna. Sumar eru úr focus og ekki fullkomnar en þið sjáið allavega myndir frá leiknum.

-


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 19:09 //-


föstudagur, mars 30, 2007

Toppslagur KV - KFS á morgun 

Á morgun, laugardag, keppir KFS við lið KV úr vesturbænum. Leikurinn hefst klukkan 16:00 á KR-gervigrasvellinum og hvetjum við alla eyjamenn jafnt sem aðra til að kíkja á völlinn og sjá hið gríðarlega sterka og unga lið KFS.

KV er í efsta sæti í 3-riðli C-deildar lengjubikarsins og KFS í því öðru eftir einn leik, bæði með 3 stig. Þessi leikur er því gríðarlega mikilvægur því ef sigur næst erum við komnir lang leiðina í úrslit.

Eins og á heimasíðu KV, fckv.com, er sagt eftirfarandi: "KFS er með sterkt lið og án þess að á önnur lið sé hallað þá er þetta mjög líklega einn af úrslitaleikjum riðilsins." Sem er nátturulega allveg hárrétt hjá þeim. Því verður þetta rosalega leikur og verður væntanlega ekkert gefið eftir.

Hægt er að sjá úrslit og stöðuna á vef ksi.is með því að smella hérna.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 18:49 //-


þriðjudagur, mars 27, 2007

Ferðasjóður verður að veruleika - Góð tíðindi. 

„Það er sérstök ánægja að tilkynna ykkur um að ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að setja á laggirnar ferðasjóð undir stjórn ÍSÍ og gera um það mál þriggja ára samning með 180 milljón króna framlagi, þ.e. 30 milljónir 2007, 60 milljónir 2008 og 90 milljónir 2009,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, bréfi sem hann hefur sent félögum innan hreyfingarinnar.

Að sögn Þórs Vilhjálms., formanns undirbúningsnefndarinnar bendir allt til, að við fáum ferðastyrki eins og ÍBV. Skila þarf nákvæmum reikningum líklega. Ef þetta reynist allt rétt, er hér um að ræða mikilvægustu frétt í sögu KFS og tilvera þess líklega tryggð um ókomna framtíð. Auðvitað vitum við ekkert um enn, hvenær ferðakostnaður fer að skila sér til baka í kassann. --Stjórinn--


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 23:51 //-


sunnudagur, mars 25, 2007

KFS 4-2 KFR 

KFS lék á laugardaginn sinn fyrsta leik gegn KFR í Lengjubikarnum. Leikið var á Selfossi í leiðindaveðri. En sigur hafðist 4-2 (2-0) og skoraði Guðgeir fyrsta mark leiksins um miðjan fyrri hálfleik, eftir stungusendingu Stefáns Bragasonar. Sigurður Ingi kom svo KFS í 2-0 nokkrum mínútum seinna.

Staðan því góð fyrir okkur í hálfleik og þar sem mikið rok og bleyta var á staðnum fóru leikmenn inní búningsklefa og fengu sér heitt te. Seinni hálfleikur byrjaði að krafti og náðu KFR menn að skora mark beint úr aukaspyrnu af 30m færi. Sigurður Ingi kom svo KFS í 3-1 þegar hann lyfti boltanum yfir markvörð KFR. Hann fullkomnaði svo þrennuna með góðu skoti fyrir utan teig sem lá í bláhorninu. KFR menn skoruðu mark allveg undir lok leiksins og því lokatölur 4-2.

Hægt er að lesa umfjöllun Stjórans um leikinn hérna, og umfjöllun Formannsins hérna. Ég var með myndavélina mína á vellinum og er hægt að skoða myndirnar með því að smella hérna. Sumar eru úr focus og ekki fullkomnar en þið sjáið allavega myndir frá leiknum.

- -


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 23:33 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008