|
sunnudagur, apríl 29, 2007
KFS spilaði æfingaleik í gær, laugardag við lið Marshalls. Spilað var í sólskinni en miklu roki á gervigrasinu hjá Fram. Leikurinn byrjaði um 17:30 leytið og þrátt fyrir að spilamennska beggja liða var ekki til fyrirmyndar, var baráttan samt í fullum gangi og bæði lið náðu að skapa sér nokkuð af færum. Frjálst var að skipti mönnum og fengu allir að spila nóg. Marshall komst yfir í leiknum eftir varnamistök en þeir voru búnir að fagna lengi þegar markvörður þeirra gerði sig sekan um mistök. Hann ætlaði að kasta boltanum til bakvarðar en Guðgeir komst inní sendingu og setti boltan snyrtilega í nærhornið. Staðan því 1-1 og átti KFS að bæta við fyrir hálfleik en því miður heppnaðist aldrei síðasta sendingin né skot KFS manna. Í hálfleik var staðan því 1-1 og náði Marshall að komast betur inní leikinn og uppskar mark eftir baráttu í teignum, eftir um það bil 10-15 mín leik. Boltin barst þá til eins leiksmanns þeirra sem setti hann í færhornið. KFS reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn og fengu nokkur góð færi en aldrei vildi boltinn inn. Marshall hefði einnig geta refsað KFS með skyndisóknum en góð vörn og markvarslað náði að halda KFS inní leiknum. Svo þegar aðeins nokkrar mínútur voru eftir að leiknum náði KFS skyndisókn þegar Stefán Bragason sendi boltan inn fyrir vörn Marshall og Sæþór komst þá í gegn, og náði að jafna metin. Stuttu seinna var flauta til leiksloka og 2-2 jafntefli að staðreynd. Nokkuð sanngjarn og Marshall á heiður skilinn fyrir góðan leik. Hópurinn: Siggi Dudek í markinu, Stefán Þór, Kiddi, Ágúst, Jóhann Sveinn, Víkingur, Stefán Bragason, Ívar Örn, Tryggvi, Guðgeir, Sæþór, Anton, Maggi, Hjalti Einars, Siggi Ingi ásamt að Trausti var á bekknum sem þjálfari.
-// Þetta skrifaði Slinger kl. 15:07 //-
sunnudagur, apríl 22, 2007
KFS spilaði síðasta leik sinn í Lengjubikarnum fyrr í dag, þegar þeir mættu liði Afríku á Gróttuvelli. Leikurinn hófst kl. 14:00 og það byrjaði vel fyrir KFS, Einar Gíslason skoraði gott mark með skalla eftir fyrirgjöf strax á 7 mín. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir KFS. Nokkrar breytingar urðu á liði KFS í seinni hálfleik og í kringum 60 mín leiksins átti Anton góða sendingu fyrir, beint á hausinn á Trausta fyrirliða, sem skallaði boltan auðveldlega í markhornið og staðan 2-0. Afríku menn voru samt ekkert á leiðinni að gefast upp og nokkrum mín seinna fengu þeir aukaspyrnu nálægt miðjunni, þar sem boltinn var sendur inní teig á þeirra stærsta mann, sem náði að skalla boltan í færhornið, 2-1. Tryggvi átti svo góðan sprett upp kantinn, gaf fyrir á Anton sem tók við boltanum og smellti honum með hægri fæti í bláhornið og tryggði KFS 3-1 sigur. KFS var betra í seinni hálfleik og átti auðveldlega að bæta við fleiri mörkum en Afríku menn fengu líka mjög gott færi sem var bjargað á marklínu. Óþarfi er að minnast á besta færi leiksins en leikmaður KFS komst þá einn á móti markmanni, ákvað að senda frekar til hliðar á samherja sinn en boltinn fór of langt og færið klúðraðist. Lið KFS: Hannes í markinu (Siggi Dudek), Adólf(Ágúst), Sindri V, Jóhann Sveinn, Einar Kristinn, Trausti (Tryggvi), Kiddi Gogga (Ívar Leifs), Siggi Ingi (Sveinn Ágúst), Stefán Braga(Viktor) , Anton og Einar Gísla (Sæþór).
-// Þetta skrifaði Slinger kl. 18:44 //-
laugardagur, apríl 21, 2007
Leikir KFS dálkurinn (hér til vinstri í leiðarkerfinu) hefur fengið uppfærslu og er hægt að sjá þar úrslit allra leikja KFS. Einnig er hægt að smella á úrslitin til að sjá leikskýrslu úr hverjum leik fyrir sig. Auðvitað eiga einhverjir leiktíma eftir að breytast og verður reynt eftir bestu getu að hafa leiktíma og völl sem réttasta hérna síðunni. Allir leikdagar og staðsetningar eru fengar af ksi.is en endilega ef þið verðið var við einhverjar villur að láta mig vita, svo ég geti lagað þær sem fyrst.
-// Þetta skrifaði Slinger kl. 03:04 //-
fimmtudagur, apríl 19, 2007
KFS mun taka þátt í hraðmóti Víðis
KFS mun mæta til leiks á hraðmóti Víðis í Garði, sem haldið verður Laugardaginn þann 5. maí. Leikið verður frá 10 um morgunin eitthvað fram eftir degi. 2 vellir verða notaðir ("Grasvellir") og spilað verður með 11 leikmenn, leiktími er 1 x 30 mín. Leikið verður í tveimur fimm liða riðlum, 4 leikir á lið og svo undanúrslit og úrslitaleikir. Nánar verður sagt frá þessu þegar frekari upplýsingar eru komnar, eins og til dæmis með hverjum við lendum í riðli og hvenær leikirnir hefjast. Verðlaun og veitingar verða svo í boði eftir mótið og bíðum við núna spenntir enda ætlar KFS að vinna þetta mót. Næsti leikur KFS er í Lengjubikarnum núna á sunnudaginn kl. 14 á móti Afríku á Gróttuvelli, en þetta er síðasti leikurinn í lengjubikarnum og því mjög góð æfing fyrir komandi sumar þótt svo að hvorugt lið á möguleika á að komast í úrslit. Því næst er Hraðmót Víðis og svo hefst íslandsmótið þann 11 maí þegar KFS mætir Ýmir. Nánar um það seinna.
-// Þetta skrifaði Slinger kl. 18:50 //-
sunnudagur, apríl 15, 2007
 KFS lék við lið Augnablikar núna fyrr í dag á nýjum gervigrasvelli Gróttumanna. Fyrir leikinn var vitað að um hörkuviðureign væri að vænta því liðið sem bæri sigur úr býtum væri sama sem komið í úrslit lengjubikarsins. KFS byrjaði af miklum krafti og eftir aðeins nokkrar mínútur var Sigurður Ingi Vilhjálmsson búinn að skora fyrir lið KFS, eftir að hann komst einn í gegn og lagði boltan skemmtilega framhjá markverði Augnablikar. KFS varð fyrir óláni þegar Steingrímur meiddist eftir einungis 15-20 mín leik og varð að yfirgefa völlinn en inná kom Guðgeir. Augnablik jafnaði svo metin augnablikum seinna með svipuðu marki og KFS, þegar liðsmaður frá þeim komst einn í gegn og setti boltan yfir Hannes í markinu og í netið. Guðgeir náði svo að setja boltan yfir línuna og KFS komið í 2-1 en á lokamínútum fyrri hálfleiks náðu Augnabliksmenn að setja boltan í netmöskvana og jafna. KFS tók miðjuna og þá var flautað af. Besta marktækifæri fyrrihálfsleiksins fékk Sindri Viðarsson, þegar hann komst einn á móti markverði, en boltinn fór því miður aðeins yfir ramman. Staðan í hálfleik því 2-2 Seinni hálfleikur var dapari hjá liði KFS, en leikurinn var samt í járnum og með smá heppni hefði allveg verið hægt að pota inn einu marki. En þegar um það bil 15 mín voru eftir að komst liðsmaður Augnablikar í gegn og náði að setja boltan framhjá Hannesi sem náði samt að koma aðeins við boltan en því miður var annar mættur frá þeim til að setja boltan í markið og staðan því 2-3 þegar lítið var eftir. KFS reyndu hvað þeir gátu að jafna metin en í einni sókn Augnablikar, var boltan á flækingi í teignum og barst boltin fyrir fætur eins leikmannsins sem setti boltan í þaknetið. Stuttu seinna var leikurinn flautaður af og því 2-4 tap að veruleika. Myndatökumaðurinn náði engum myndum á leiknum vegna þess að hann var settur á línuna fyrstu 70 mín leiksins. En hópmynd náðist ásamt myndum fyrir leikinn að leikmönnum KFS og koma þær í "Leikmenn" fljótlega.
-// Þetta skrifaði Slinger kl. 21:29 //-
föstudagur, apríl 13, 2007
Á sunnudaginn kl. 14:00 mun KFS keppa sinn þriðja leik í Lengjubikarnum. Þá munu þeir spila við lið Augnablikar á Gróttuvellinum. KFS tapaði síðasta leik 1-2 fyrir KV en eru staðráðnir í að komast í úrslit og þurfa því að vinna lið Augnablikar, bæði lið hafa 3 stig en KFS er búið að leika einum leik meira. Með sigri getur KFS komist í annað sætið í riðlinum uppað hlið KV sem hefur 6 stig. KFR og Afríka eru en án stiga. Hægt er að sjá stöðuna í riðlinum og leikjafyrirkomulag með því að smella hérna.
-// Þetta skrifaði Slinger kl. 12:02 //-
fimmtudagur, apríl 12, 2007
Steingrímur Jóhannesson, knattspyrnukappi frægi hefur ákveðið að leika með okkur í KFS í sumar. Steingrímur, sem gerði garðinn frægann með ÍBV á árum áður finnur þar fyrir bróður sinn Hjalta (og Sæþór líka) sem sömuleiðis lék með ÍBV í eina tíð. Steingrímur lék með 16 leiki Selfyssingum síðasta sumar og skoraði í þeim fimm mörk. Einnig hefur Þá hefur Kristinn Sigurðsson ákveðið að spila með okkur í KFS í sumar og gengur í raðir félagsins frá ÍBV. KFS ætlar að styrkja sig en meira fyrir komandi sumar og verður það auðvitað tilkynnt hérna á síðunni. Stjórinn sagði eftirfarandi um þá félaga: "Steingrímur Jóhannesson gekk yfir til okkar frá Selfossi í dag, einnig Kristinn Sigurðsson frá ÍBV. Báðir hafa leikið með okkur í vor og verða mikill fengur fyrir félagið. Steingrím þarf ekki að kynna, glatt okkur Eyjamenn í áraraðir með mörkunum sínum og heldur því nú áfram með okkur! Stefnan er að sjálfsögðu sett á 2. deild með svona leikmann innanborðs! Hjartanlega velkomnir báðir tveir!"
-// Þetta skrifaði Slinger kl. 17:01 //-
|