Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



mánudagur, maí 21, 2007

KFS 0-0 Hamar 

Fyrsti heimaleikur KFS fór fram í gær, sunnudag í vægast sagt, hræðilegu veðri. Framan af deginum var fínt veður og komst bæði útiliði ásamt liðsmönnum KFS ofan af landi til eyja. Mikið rok var og gekk á með miklum skúrum.

Leikurinn byrjaði og tók það greinilega menn smá tíma að venjast grasinu, enda mikið búið að æfa á gervigrasi í bænum. Völlur var líka blautur og erfitt að ráða við boltan. KFS fengu betri færi í fyrri hálfleik, þegar Anton Rafn fékk boltan út til vinstri og átti skot sem markvörður Hamars varði nokkuð auðveldlega. Svo stuttu seinna átti Anton sendingu fyrir markið þar sem Sæþór rétt missti af boltanum en Trausti Hjalta náði að teygja sig í boltan en náði ekki að stýra honum í netið. Einnig voru nokkur hálffæri en bæði lið blaut og þreytt þegar flautað var til hálfleiks í stöðunni 0-0.

Í seinni hálfleik tók það bæði lið nokkurn tíma að komast í gang, ásamt því að boltin var mest allan tíman öðru megin á vellinum (vegna roks) og örugglega 20 innköst tekinn á fyrstu 30 mín. KFS var betri aðilinn og eins og í fyrri hálfleik áttu þeir nokkur góð færi. Sending frá Stefán Braga inn fyrir vörnina á Sæþór, sem náði góðu skoti sem markvörður Hamars varði glæsilega beint fyrir lappirnar á Trausta Hjaltasyni sem átti svo skot framhjá markinu. Stuttu seinna eftir hornspyrnu Hamars kom löng sending fram sem Sæþór náði og komst einn á móti markverði en eitthvað flæktist boltin fyrir honum og varnarmaður ásamt markverði náði að stoppa færið. Einnig eins og í fyrri hálfleik voru nokkur hálffæri. Hamars menn fengu einhverja auka hressingu rétt fyrir leikslok og hefði geta stolið stigunum þremur á ósanngjarnan hátt en þeir áttu skalla í stöng eftir hornspyrnu. Ásamt að einn leikmanna þeirra komst einn á móti Sigga "Dudek" markverði KFS sem varði glæsilega. Því endatölur 0-0 sem hefði átt að vera sigur KFS en þjálfarinn var ánægður með stigið. Hægt er að lesa umfjöllun hans á spjallinu.

Liðið: Sigurður í markinu, Adólf og Trausti Hermanns bakverðir, Sindri Viðars og Stefán Þór í vörninni. Anton Rafn og Trausti Hjalta á köntunum, Kiddi Gogga, Stefán Bragason og Ívar Örn á miðjunni og Sæþór fremstur. Varamenn sem allir komu inná voru: Nick, Andri Eyvinds, Jóhann Sveinn, Jóhann Rúnar og Guðgeir.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 12:19 //-


föstudagur, maí 18, 2007

Fyrsti heimaleikur KFS á sunnudaginn 

KFS mun leika sinn fyrsta heimaleik á sunnudaginn á móti Hamri klukkan 16:00. Leikurinn fer fram á Helgafellsvelli og er frítt á völlinn. KFS byrjaði íslandsmótið með sigri í sínum fyrsta leik og núna munu þeir mæta liði Hamars sem er gríðarsterkt og er spáð góðu gengi í sumar, enda búið að fá mikinn liðsstyrk og ætlar sér stóra hluti.

KFS þarf því á öllum þeim stuðningi sem hægt er að fá og um að gera að kíkja út í "góða" veðrið og sjá unga, sem aldna eyjapeyja leika skemmtilegan fótbolta. Ásamt því að lið KFS er komið í nýjan búning, sem er rauður og fallegur. Eins og sést í könnunnin hérna á síðunni á KFS mjög marga fallega leikmenn, sem taka sig virkilega vel út í nýja búningnum og því um að gera að kíkja á völlinn.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 14:20 //-


fimmtudagur, maí 17, 2007

Ýmir 1-3 KFS 

KFS lék sinn fyrsta leik í íslandsmótinu síðasta föstudag þegar þeir mættu liði Ýmis. Leikurinn var sá fyrsti í íslandsmótinu árið 2007 í öllum deildum. Hægt er að segja að leikurinn byrjaði kröftuglega en innan við 10 mín leik komst leikmaður KFS einn á móti markverði Ýmis og lendu þeir í samstuði og vítaspyrna dæmt ásamt því að markverðinum var sýnt gult spjald. Trausti Hjaltason, fyrirliði KFS, skoraði örugglega úr vítaspyrnunni og var markvörður Ýmis ekki sáttur við dómaran og mótmælti mikið og fékk að lokum rautt spjald. Útileikmaður Ýmis fór þá í markið. Leikurinn var jafn og skemmtilegur og í kringum 30 mín leiksins kom löng sending frá hægri kantinum beint á Anton Rafn sem smellti boltanum viðstöðulaust í netið. Staðan því 2-0 fyrir KFS, og þeir engan veginn hættir. Svo loks á 40 mínútu kemst einn leikmanna KFS í gegnum vörnin, potar boltanum framhjá markverði Ýmis sem bregður fætinum fyrir hann og fellir. Dómarinn sýnir markverðinum rautt spjald og því þurfti annar útileikmaður að fara í markið. Staðan því 2-0 í hálfleik og KFS 2 leikmönnum fleiri.

KFS var lengi í gang í seinni hálfleik og fékk á sig mark, staðan því 2-1 og við það lifnaði aðeins við leikmönnum KFS sem sóttu af krafti en ekki gekk að komast í alvöru færi. En þegar hálfleikurinn var um það bil hálfnaður kom skemmtileg sókn hjá KFS þar sem góð fyrirgjöf kom fyrir markið og þar var Guðgeir Clark mættur og setti boltan í netið. Staðan því orðinn 3-1 og nánast örugg og hélt sú staða til loka. Fyrsti sigur KFS á íslandsmótinu að staðreynd og mjög gott að hirða 3 stig á erfiðum útivelli.

Við þökkum Ými fyrir góðan leik og óskum lærisveinum Zelko's góðs gengis og hlökkum við til að mætta þeim á Helgafellsvelli seinna í sumar. Einnig á Ýmir þakkir skildar fyrir góðar pizzur og gos eftir leik.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 23:58 //-


föstudagur, maí 11, 2007

Fyrsti leikur KFS í Íslandsmótinu 

KFS leikur sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu í þriðjudeild í kvöld, Föstudaginn 11 maí. Leikið verður við lið Ýmis á gervigrasinu í Fagralundi. Leikurinn hefst klukkan 21:00 að staðartíma og búist er við hörkuleik.

KFS er búið að fá nokkuð mikin liðsstyrk fyrir komandi sumar og því er um að gera að kíkja á völlinn og sjá eyjapeyja, jafn unga sem aðra etja kappi við leikmenn Zelko, fyrrverandi þjálfara í eyjum.

Leikurinn hefst kl. 21:00 á Gervigrasinu í Fagralundi, í kópavogi eins og fyrr var greint frá. Úrslit og markaskorarar koma svo hingað á síðuna strax um kvöldið.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 02:19 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008