Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



föstudagur, júní 29, 2007

KB 0-1 KFS 

KFS fór í Breiðholtið síðasta miðvikudag og keppti þar við lið KB. Leikurinn hófst kl.19:00 í mjög góðu veðri en á mjög leiðinlegum gervigrasvelli Leiknismanna. Er alltaf leiðinlegt að spila á gervigrasi yfir hásumar og sérstaklegar þegar Breiðholtsbúar eiga þennan líka flotta grasvöll og stúku. Leikmenn KFS fóru snemma út á völl til að reyna að venjast aðstæðum, einn leikmaður KFS meiddist hinsvegar fljótlega og gat ekki spilað leikinn, því þurfti að breyta nokkuð leikskipulagi liðsins en alltaf kemur maður í manns stað.

Þegar flautað var til leiks var greinilegt að það tók KFS menn smá tíma að venjast aðstæðum og KB sóttu og voru betri aðili leiksins ásamt því að KFS reyndi stungu sendingar sem ekki voru að gefa nein alvöru færi. Þorsteinn fékk samt gott færi en markvörður KB manna varði glæsilega með úthlaupi. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik og bæði lið voru að berjast út um allan völl.

Ein breyting var gerð á liði KFS í hálfleik, Trausti Hermans kom inná fyrir Þorsteinn. KFS menn komu tvíefldir til leiks eftir hálfleiksræðuna og ætluðu sér greinilega 3 stigin enda toppsætið í húfi. Á 67 mínútu kom svo glæsileg sending frá Adólfi yfir varnarmann KB, Magnús Skósölumaður tók boltan glæsilega á kassan, lagði hann fyrir sig og hamrið svo knettinum í þaknetið, óverjandi fyrir annars góðan markvörð KB manna. Staðan því 1-0 og KFS menn í góðum málum, enda bara búnir að fá á sig eitt mark í síðustu 4 leikjum. KB styrktist samt og náðu þeir góðri pressu og nokkrum færum á áttu meðan annars stórhættulegt skot í þakslána. Undir lokin varð svo einhver hróp og köll sem enduðu með því að einn í liðsstjórn KFS fékk að líta gula spjaldið. Leikurinn endaði því 0-1 fyrir KFS og þrjú góð stig í hús.

Jafntefli hefði örugglega verið sanngjörn úrslit en að þessu sinni tók KFS öll þrjú stigin og eiga KB menn heiður skilinn fyrir góðan leik, en því miður engan heiður á því að spila á gervigrasi um hásumar. Næsti leikur er svo á föstudaginn þegar KFR menn koma í heimsókn á Helgafellsvöll og byrjar leikurinn kl. 20:00.

Liðið: Siggi Braga í markinu, aðrir leikmenn, Adólf, Sindri Viðars, Einar Kristinn, Stefán Þór, Anton Rafn, Sigurður Ingi, Jóhann Rúnar, Sæþór, Þorsteinn, Maggi Steindórs


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 10:12 //-


miðvikudagur, júní 27, 2007

KB - KFS í kvöld 

KFS mun ferðast í Breiðholtið í kvöld, en þar munum við mæta liði KB. Leikurinn fer fram á gervigrasi Leiknismanna og hefst klukkan 19:00. KFS er en sem stendur í 2.sæti riðilsins með 10 stig en KB fylgir þeim fast á eftir með 9 stig.

Núna þegar 5 leikjum er lokið er riðilinn aðeins að skiptast en fimm efstu liðin eru með 9 til 12 stig en þrjú neðstu hafa 1 til 4 stig. En aðeins 2 efstu liðin í hverjum riðli kemst í úrslitakeppnina í 3.deild. Leikurinn í kvöld er því gríðarlega mikilvægur, rétt eins og aðrir leikir liðsins til að komast í góða stöðu og sitja ekki eftir.

Veðurspáin lítur vel út og KFS menn eru afburðafallegir (skv. könnun að minnsta kosti) þannig að það er ekkert sem ætti að stoppa stuðningsmenn eyjaliðsins til að kíkja á völlinn og sjá sitt lið.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 08:15 //-


mánudagur, júní 25, 2007

KFS 3-1 Grótta 

Síðasta fimmtudag mættust KFS og Grótta í íslandsmóti 3 deildar, A-riðils. Hérna í vestmannaeyjum, veðrið var gott þrátt fyrir dálítið rok sem setti sinn svip á leikinn. Nokkur fjöldi áhorfenda voru mættir til að horfa á KFS menn, þá sérstaklega Sigurð Inga sem þótti bera af á vellinum, enda maðurinn mjög heitur þessa dagana. KFS byrjaði eins og í leiknum á móti Árborg, með 2 frammi, þá bræður Steingrím og Sæþór en þrjár breytingar voru gerðar á liðinu þar sem báðir vængmennirnir voru meiddir, Trausti Hjaltason (fyrirliði) og Anton Rafn voru lítilsháttar meiddir og verða líklega báðir með á miðvikudaginn. Andri Eyvinds kom inní byrjunarliði, ásamt þeim Sindra Viðars og Adólfi.

Leikurinn byrjaði af miklum krafti og greinilegt að það var engin tilviljun að Gróttumenn væru í efsta sæti, búið að sigra alla sína leiki, en KFS lét ekkert á sig fá og eftir einungis 10 mín leik, kom langt innkast þar sem Adólf skallaði boltan áfram á Steingrímur sem var einn og óvaldaður og náði að setja boltan í netið. Mikið var fagnað enda fyrsta mark Steingríms í sumar og ekki það síðasta því aðeins 25 mín seinna hafði hann bætt við öðru marki eftir góða fyrirgjöf Einars Kristinn. Sæþór hefði geta komið KFS í 3-0 fyrir hálfleik en skot hans fór rétt framhjá í mjög góðu færi. Staðan því 2-0 í hálfleik og KFS í góðum málum.

Grótta kom samt á fullum krafti eftir hálfleik en það gerðu KFS menn einnig. Og þegar um það bil 10 mín voru liðnar af seinni hálfleik, kemur sending fyrir þar sem Sigurður Ingi á skot í varnarmann, boltin berst til Sæþórs sem setur boltan í netið framhjá markverði Gróttu, staðan því orðin 3-0 og Gróttumenn orðnir frekar pirraði, og létu dómaran og aðstoðardómara heyra það allan leikinn. Nokkuð var af færum en það voru Gróttumenn sem minnkuðu munin en það var mark í fáranlegri kantinum. Einn leikmaður Gróttu tekur horn, spyrnir boltanum í boga, með vindin með sér, að nærstönginni og varnarmaður KFS misreiknar boltan illilega og leyfir honum að fara framhjá sér, með það í huga að hann fari í hliðarnetið og útaf, en boltinn fór hárfínt innfyrir stöngina og í netið án þess að Gunnar Sig gæti nokkuð gert, enda bjóst hann við að varnamaðurinn væri með boltan. Staðan því 3-1, Gróttumenn sóttu boltan í netið og hlupu með hann að miðju og þegar Steingrímur ætlaði að taka boltan, enda áttum við hann, þá var uppi fótur og fit á vellinum og að lokum náði dómari leiksins að róa mannskapinn niður. Eftir þetta varð mikil barátta á vellinum, Gróttumenn létu dómaran heyra það í hvert skiptið sem flautað var og leikurinn datt niður. KFS skoraði samt eitt mark þar sem glöggir áhorfendur sögðu að hefði verið fullkomlega löglegt, línuvörðurinn flaggaði enga rangstöðu en dómari leiksins ákvað að dæma rangstöðu á KFS og markið því dæmt af.

Endatölur því 3-1 sem er mjög góður sigur á toppliði riðilsins og er riðillinn orðinn mjög spennadi enda einungis 3 stig sem skilur liðið í efsta sæti frá því sem er í 5 sæti. KFS er en sem stendur í 2.sæti með 10 stig og hefur fengið á sig fæst mörkin í riðlinum. Næsti leikur er á miðvikudaginn, úti á móti KB og svo er heimaleikur á Helgafellsvelli föstudaginn 6.júlí á móti KFR.

Liðið: Gunnar Sig í markinu. Sindri Viðars, Stefán Þór, Adólf og Trausti Hermans í vörninni. Andri Eyvinds, Sigurður Ingi, Jóhann Rúnar og Einar Kristinn (Hilmar) á miðjunni. Steingrímur(Magnús) og Sæþór frammi.
Ónotaðir varamenn: Sveinn Ágúst, Viktor Smári og Ágúst Ingi.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 10:03 //-


fimmtudagur, júní 21, 2007

KFS - Grótta Toppslagur í kvöld 

KFS mun mæta liði Gróttu á Helgafellsvelli í kvöld, Fimmtudaginn 21. júní klukkan 20:00. Þessi leikur er toppslagur því eins og staðan er í riðlinum núna er Grótta í efsta sæti með fullt hús stiga, 12 stig eftir 4 leiki en næstir koma KFS með 7 stig eftir jafn marga leiki. Grótta hefur markatöluna 17-2 og KFS 7-2 og eru þessi lið búinn að fá hve fæst mörk á sig og Grótta hefur verið iðið við að skora mörk en KFS hefur ekki staðið sig nógu vel á heimavelli. En vonandi eru þeir komnir á beina brautina eftir stórsigur í síðasta leik og því næstum því hægt að lofa hörkuleik milli tveggja toppliða sem báðum var spáð mjög góðu gengi í sumar.

Stuðningur áhorfenda skiptir auðvitað miklu máli og hvetjum við alla til að rífa sig frá sjónvarpstækjunum í kvöld og kíkja út, í vonandi góða veðrið, með alla fjölskylduna og hafa gaman af.

Staðan í riðlinum eftir 4 umferðir er eftirfarandi:

1. Grótta (12 stig)
2. KFS (7 stig)
3. Hamar (7 stig)
4. KB (6 stig)
5. Ægir (6 stig)
6. Ýmir (4 stig)
7. Árborg (3 stig)
8. KFR (1 stig)


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 09:30 //-


mánudagur, júní 18, 2007

Pistill frá Sigurði Einarssyni NÝTT 

Eftir mjög mikla pressu frá liðsfélögum sínum hefur loksins, Sigurður Einar Einarsson skrifað nýjan pistill sem kominn er hérna á síðuna. Er þetta fimmti pistill Sigga en hann skrifaði 4 fræga árið 2002-2003.

Í pistlinum fjallar hann um KFS á árinu og segir sína skoðun eins og honum er einum lagið, enda mjög laginn með pennan, kappinn sá og óþarfi að ég skrifi eitthvað meira hérna. Hann segir allt sem segja þarf. Hægt er að sjá alla pistla Sigga í pistlahorninu og einnig er hægt að lesa þann nýjasta með þeirri einföldu leið að smella á meðfylgjandi tengill: Pistill 5 - Endurkoma Dudeks 2007

Endilega skrifið ykkar álit á pistli Sigga hér í commentum sem fylgir þessari frétt. Alltaf gaman að heyra hvað mönnum finnst um þessi orð... Er þetta allt saman sannleikur og eru menn sammála þessum orðum?


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 21:44 //-


sunnudagur, júní 17, 2007

Árborg 0-4 KFS 

KFS sigraði Árborg í skemmtilegum leik á Selfossi síðasta föstudag. Tölfræðin var ekki með KFS fyrir leikinn en aldrei höfum við náð góðum úrslitum á þessum velli. Sólskin og blíða var á Selfossi og spilað var á aðalvellinum sem reyndar var mjög harður og ekki fallegur á álagssvæðum.

Flautað var til leiks klukkan 20 og spilaði KFS 4-4-2 í fyrsta sinn í sumar en hingað til hefur kerfið 4-5-1 verið mikið notað. Gunnar Sigurðsson, fyrrverandi markvörður ÍBV og Fram var í markinu hjá okkur og stjórnaði eins og honum er einum lagið. Bræðurnir Steingrímur og Sæþór Jóhannessynir byrjuðu frammi og tveir "útlendingar" spiluðu í hjarta varnarinar. Sem sagt báðir ofan af landi. KFS sótti og sótti fyrstu mínúturnar en inn vildi boltinn ekki, heldur fór alltaf rétt fram hjá marki Árborgar. Svo á 22 mín fékk Sæþór boltan fyrir utan vítateig og lét vaða á markið, boltinn sveif fallega yfir markvörðinn og í netið. 1-0 og útlit fyrir skemmtilegan leik. KFS sótti svo aðeins og Árborg náði svo góðum kafla og náðu að skapa sér nokkur hættuleg færi en boltinn flaug hátt yfir í þeim öllum ásamt góðri markvörslu Gunnars. Svo undir lok hálfleiksins komst Sigurður Ingi í gegn eftir skemmtilega takta og setti boltan snyrtilega undir markvörðinn og staðan því 2-0 í hálfleik.

KFS var staðráðið að berjast áfram og gefa ekkert eftir í seinni hálfleik og Árborgar menn staðráðnir að jafna metin. Nokkur færi voru en eftir um það bil 10 mín komst Sigurður Ingi í færi sem markvörðurinn varði og boltin barst til Sæþórs sem skaut einnig en markvörðurinn náði að setja löppina fyrir boltan sem barst aftur á Sigurð sem kláraði færið á einfaldan hátt og KFS komið í 3-0. Mikil barátta var og hefði bæði lið geta skorað eitt til tvö mörk en svo þegar 15 mín voru eftir að leiknum átti Anton Rafn fallega sendingu á Sæþór sem var einn og óvaldaður á hægra vítateigshorninu, tók boltan á kassan og hamraði hann fram hjá markverði Árborgar í fjær hornið. Staðan því 4-0 og stórglæsilegur sigur KFS að staðreynd. Einmitt það sem þurfti eftir að hafa leikið 2 leiki í röð án þess að skora mark. Einnig ber að minnast á stuðningsmenn Árborgar en settu þeir mikin svip á leikinn, en þeir sungu söngva, voru með lag um hvern einasta leikmann síns liðs og mikil stemning. Minntu mikið á hina merku sveit AKFS en auðvitað komust þeir ekki með tærnar þar sem við höfðum hælana.

Skemmtilegt er líka að sjá að KFS er búið að sigra báða útileikina sína og er með markatöluna 7-1 í þeim tveim en jafn leiðinlegt er að sjá að aðeins eitt stig hefur fengist úr 2 heimaleikjum en því á að breyta á fimmtudaginn þegar lið Gróttu kemur í heimsókn.

Liðið: Gunnar (Sigurður 83 mín) í markinu. Trausti Hermanns (Ágúst Ingi 73 mín) og Einar Kristinn (Ívar Örn 36 mín) bakverðir. Stefán Þór og Magnús Stefánsson í vörninni. Trausti Hjalta (Andri Eyvinds 10 mín) og Anton Rafn á köntunum og Sigurður Ingi og Jóhann Rúnar á miðjunni. Steingrímur og Sæþór (Svenni 79 mín) voru svo frammi.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 19:20 //-


föstudagur, júní 15, 2007

Árborg - KFS í kvöld 


KFS mun mæta liði Árborgar í kvöld klukkan 20:00, en leikurinn fer fram á Selfossvelli.

Árborg er búið að sigra einn leik en tapa tveim í íslandsmótinu og því einu stigi á eftir KFS sem hefur aðeins tapað einum leik, gert eitt jafntefli og einn sigur og hefur því 4 stig. KFS er með markatöluna 3-2 sem verður nú að teljast frekar lágt miða við undanfarin ár hjá KFS en jákvætt að vörnin er að standa sig.

Með sigri KFS í kvöld eigum við möguleika á 2 sæti, uppað hlið Hamars sem einnig á leik í kvöld, gegn Ægi.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 08:29 //-


föstudagur, júní 08, 2007

KFS 0 - 1 Ægir 

KFS tapaði með einu marki á móti liði Ægis frá Þorlákshöfn. Leikurinn var leikinn í toppaðstæðum, þótt svo að völlurinn var kannski ekki í toppstandi en góður þó. Fjölmargir áhorfendur mættu á völlinn til að styðja okkur og þökkum við þeim stuðningin. Leikurinn frestaðist um einhverjar 20 mín vegna Ægismanna, þar sem þeir voru seinir með flugi.

Leikurinn hófst samt að lokum og KFS gerði nokkrar breytingar á liði sínum frá því í síðasta leik. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og nokkur hálffæri litu dagsins ljós, KFS fór svo að stjórna miðjunni og ná undirtökunum í leiknum. Ægismenn komust samt tvisvar sinnum einn á móti markverði, í fyrra skiptið skaut leikmaðurinn framhjá markinu en í seinna skiptið setti hann boltan í netið. Markið kom 6 mín fyrir hálfleik og var nokkuð gegn gangi leiksins en það er víst aldrei spurt af því. Margar tæklingar litu dagsins ljós og voru leikmenn KFS ekki ánægðir með hversu mikið dómarinn leyfði Ægismönnum. Dómari leiksins sem sýndi ekki mikil tilþrif sýndi svo Sindra Viðarssyni gult spjald rétt fyrir hálfleik. Stefán Þór, varnarmaður KFS, meiddist einnig stuttu fyrir hálfleik og fékk skiptingu. Inná kom sá gamalreyndi leikmaður, Hlynur Stefánsson sem var að spila sinn fyrsta leik i nokkurn tíma.

Strax í seinni hálfleik tók KFS öll völd á vellinum en leikmenn Ægis, duttu aftur, vörðust vel og tóku engar áhættur enda með 1-0 forrustu. KFS náði ekki að komast í neitt alvörufæri en átti nokkur skot að marki sem flest öll fóru vel yfir. Svo á 65 mín fékk Sindri Viðars sitt annað gula spjald, eftir að hafa fellt leikmann Ægis þegar hann var að sleppa einn í gegn, og því rautt. Leikmenn KFS því einum færri en þeir gáfust ekki upp og stjórnuðu öllum leiknum, en náði ekki að skapa sér nein færi. Nokkur hálffæri og skot fyrir utan teig en aldrei svo mikið að markvörður Ægis þurfti að svitna mikið. Ægismenn fögnuðu því mikið í leikslok enda þeirra fyrstu stig í deildinni en KFS menn nöguðu sig algjörlega í handarbakið.

En það þýðir ekkert að hengja haus, heldur að koma bara tvöfalt sterkari til baka og sigra næsta leik sem er á móti liði Árborgar, á Selfossvelli, næstkomandi föstudag.

Liðið: Sigurður í markinu, Trausti Hermans (Einar Kristinn), Sindri Viðars, Stefán Þór (Hlynur Stefáns), Adólf, Hjalti Jóh, Sigurður Ingi (Jóhann Rúnar) , Stefán Braga (Andri Eyvinds) , Anton Rafn, Trausti Hjalta og Steingrímur (Sæþór)


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 12:08 //-


fimmtudagur, júní 07, 2007

KFS - Ægir í kvöld kl 20:00 


KFS mun mæta liði Ægis, frá þorlákshöfn í kvöld klukkan 20:00 á Helgafellsvelli.

Búið er að fresta leiknum tvisvar sinnum en hann átti upprunalega að vera á þriðjudagskvöldið.
En veðrið er það besta sem sést hefur í viku, logn og góðviðri þótt sólina vantar.

Því er um að gera að kíkja á völlinn í kvöld, styðja lið KFS til sigurs.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 12:34 //-


miðvikudagur, júní 06, 2007

Ægisleiknum en frestað. 

Leikið verður á morgun, Fimmtudag, klukkan 20:00 á Helgafellsvelli.

Miða við úrslit í riðlinum til þessa, getur þessi leikur skilið liðin sem verða í toppbaráttunni frá hinum liðunum og því um mjög mikilvægan leik að ræða. En með sigri, kemst KFS í annað sætið í riðlinum með 7 stig.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 16:54 //-


þriðjudagur, júní 05, 2007

Leiknum frestað til morguns 

Leik KFS og Ægirs sem fram átti að fara í kvöld klukkan átta hefur verið frestað vegna ófærðar. Leikurinn mun fara fram annað kvöld, Miðvikudaginn 6. Júní klukkan 20:00 á Helgafellsvelli.

Hvetjum alla að kíkja á völlinn og styðja hið skemmtilega lið KFS.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 17:22 //-


laugardagur, júní 02, 2007

Til hamingju, Sjómenn 

KFS óskar öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn.

KFS mun svo spila sinn annan heimaleik á þriðjudaginn, kl 20:00 á Helgafellsvelli. Ásamt því að síðan hefur verið uppfærð og núna er kominn leikmaður vikunnar í stað tvífaranna. Guðgeir Clark var leikmaður vikurnnar í síðasta heimaleik og verður þetta horn uppfært við hvern heimaleik.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 14:59 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008