Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



þriðjudagur, júlí 31, 2007

Ægir 2-2 KFS 

Síðast liðinn föstudag hélt KFS til Þorlákshafnar, og það ekki með Herjólfi. KFS var búið að reyna að fá leiknum flýtt, svo að það yrði auðveldara að komast með flugi til baka. Því var hafnað af Ægismönnum því þeir þurftu að vinna svo lengi. Klukkan átta þegar leikurinn átti að hefjast kom í ljós að engin dómari var á staðnum og eftir einhvern tíma kom í ljós að það náðist ekki í hann og að hann myndi ekki koma. Dómari var á staðnum en KSÍ neitaði að leyfa honum að dæma vegna þess hversu mikilvægur leikurinn væri. Því þurfti að bíða í heilar 50 mín eftir að dómarinn mætti frá Selfossi. Leikurinn gat því loksins hafist um níu leytið.


Leikurinn byrjaði að þó nokkrum krafti og greinilegt að menn létu ekki biðina hafa mikil áhrif á sig. Bæði lið fengu nokkur færi áður en það kom góð fyrirgjöf frá vinstri kanti frá Einar Kristni, beint fyrir fæturnar á Steingrími sem setti boltan hnitmiðað í vinstra hornið. 27 mín lokið og staðan 1-0 fyrir KFS, aðeins 10 mín seinna á svo Sigurður Ingi góða fyrirgjöf frá hægri kantinum þar sem eitthvað bras var í teignum hjá Ægismönnum, en að lokum með ótrúlegri hörku nær Steingrímur að setja boltan í netið. KFS átti nokkrar góðar fyrirgjafir í fyrri hálfleik en alltaf náðu Ægismenn að bjarga. 2-0 því staðreynd í hálfleik og KFS í góðri stöðu.

Seinni hálfleikur byrjaði að sömu hörku en KFS þurfti að gera nokkrar breytingar á liði sínu vegna meiðsla. Ægismenn komust betur inní leikinn og voru meira með boltan og á 60 mín náðu þeir að brjóta varnarmúr KFS manna, þegar það kemur sending fyrir markið, Framherji Ægis var fyrstur á staðinn og skallar í markið. KFS náði nokkrum skyndisóknum en aldrei nægjanlega góðum til að skapa neina alvöru hættu. Athygli vakti þó að í hvert skiptið sem leikmenn lágu í grasinu eftir samstuð var þeim skipað á fætur og áfram með leikinn. Á síðustu 35 mín leiksins fengu 5 leikmenn KFS gul spjöld og einn af þeim fékk að líta sitt annað gula og því rautt á síðustu mín leiksins sem var vissulega skrautleg. En af einhverjum ástæðum sá dómari leiksins ástæðu til þess að bæta við heilum 7-8 mín við venjulegan leiktíma og þar sem búið var að biðja hann af báðum liðum að hafa "stuttan" leik ásamt því að lítið var að skiptingum og meiðslum voru þessar 7-8 mín illskiljanlegar. KFS var búið að liggja svolítið í vörn en þegar 1 mín er eftir eiga Ægismenn slappt skot á markið sem markvörður KFS ver, réttara sagt, hann slær boltan niður með höndunum og ákveður að tefja aðeins leikinn. Þegar sóknarmenn Ægis pressa hann, tekur hann boltan einfaldlega upp. Ægismenn öskra þá eitthvað og ákveður dómari leiksins að núna er tímabært að dæma tvígrip á markvörðinn, 1,5 metra frá marklínu, á 96 mín, í stöðunni 2-1. Skiljanlega var þessum dómi mikið mótmælt en allt kom fyrir ekkert og tóku Ægismenn óbeina aukaspyrnu sem hafnaði í netinu eftir að aðrir leikmenn höfðu haldið KFS mönnum föstum tökum á línunni og því ómögulegt að fara í árás. Eftir þetta fékk leikmaður KFS rauða spjaldið og KFS náði einni hálfsókn áður en flautað var af.

Því jafntefli í Þorlákshöfn þar sem sigur átti að klárast í fyrri hálfleik, en það þýðir lítið að grenja þennan leik og því verður bara að setja allt í næsta leik sem er á móti liði Árborgar á Hásteinsvelli á morgun, miðvikudag. KFS er enn sem stendur í 3 sæti riðilsins en heilum 5 stigum á eftir Hamri.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 09:39 //-


föstudagur, júlí 27, 2007

Ægir - KFS í kvöld 

KFS mun ferðast til Þorlákshafnar í kvöld og spila þar við lið Ægis. Ægir er sem stendur í fjórða sæti riðilsins aðeins einu stigi á eftir KFS og því ljóst að ef þeir bera sigur úr býtum að þá hafa þessi tvö lið sætaskipti. En Ægismenn hirtu öll 3 stigin hérna í eyjum síðast og eru KFS menn staðráðnir að hefna tapsins og gefa allt sitt í leikinn.

Leikurinn hefst klukkan 20:00 á Þorlákshafnarvelli og miða við veðrið í eyjum þá er útlit fyrir frábærar fótbolta aðstæður. Næsti leikur KFS verður svo á miðvikudaginn, en þá mætir Árborg á Hásteinsvöllinn. Vonandi fyrir framan fulla stúku af áhorfendum sem munu byrjar þjóðhátíðina snemma þetta árið.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 13:05 //-


þriðjudagur, júlí 24, 2007

KFS 2-3 Ýmir 

KFS spilaði í gærkvöldi við lið Ýmis, b-lið HK. Fyrir leikinn var vitað um að hörkuleik væri að ræða og ekkert yrði gefið eftir. Leiknum hefði verið frestað frá því á föstudaginn en var leikinn í gær í góðu veðri. Fjölmargir áhorfendur létu sjá sig á vellinum og var útlit fyrir skemmtilegan leik.

KFS byrjaði að dálitlum krafti og átti Sæþór ágæt færi þegar hann var að komast einn í gegn en skot hans fer yfir markvörðinn og markið. Á 9 mínútu er boltinn eitthvað laus inní teignum hjá KFS, og áður en KFS menn ná að hreinsa í burtu kemst leikmaður Ýmis í boltan og nær að sparka boltanum uppí loftið og beint í fjær hornið. KFS detta dálítið af laginu við þetta mark en gefast engan veginn upp. Anton fékk gott færi þegar boltinn barst til hans á fjærstöng en skot hans hafnaði í innanverði fjærstönginni. Sigurður Ingi átti skot sem fór beint á markvörðinn. Magnús Steindórs fékk ágæt færi og tók boltan á lofti en eins og skot Sæþórs fór knötturinn yfir markið. Á 30 mín urðu KFS fyrir áfalli þegar Kristján Georgsson kinnbeinsbrotnaði í samstuði og þurfti því að yfirgefa völlinn.

KFS komu betur inn í seinni hálfleik og sóttu að krafti og á 50 mín bar það árangur. En þá kemur löng sending á hausinn á Magga Steindórs sem skallar hann inn fyrir vörn Ýmis á Sæþór sem er sloppinn í gegn en ákveður að setja boltan frekar fyrir markið þar sem Tryggvi Hjaltason, sem hafði komið inná sem vararmaður fyrir Kidda Gogga, hamrar boltan í netið. Staðan því 1-1 og allt mögulegt. Nokkuð af færum litu dagsins ljós, en á 67 mín fékk leikmaður Ýmis boltan á miðjunni, lék upp völlinn og lét vaða á ramman af 30 m færi beint í bláhornið, vel gert hjá honum en varnarvinna KFS ekki nógu vakandi. Aðeins 2 mín seinna fær Ýmir svo hornspyrnu, boltinn dettur á fjærstöngina og eftir mikið bras dettur boltinn út á einn leikmann þeirra, sem stendur á markteignum og gjörsamlega hamrar boltan í þaknetið af stuttu færi. 1-3 og útlitið ekki gott fyrir KFS. Heimamenn fengu samt víti þegar boltinn fór í hendina á leikmanni Ýmis og þaðan á markvörðinn, Ýmis menn kvörtuðu mikið en vítið stóð. Sindri Grétarsson fór á punktinn en átti dapurt skot sem markvörðinn varði léttilega. KFS héldu samt áfram og átti Sæþór gott skot fyrir utan teig sem hafnaði í þverslánni. Sindri Grétars átti gott færi sem markvörðinn varði en fékk boltan aftur og þá hafnaði skotið í stönginni. Tryggvi átti laust skot á markvörðinn. Svo á 92 mín náðu KFS að klóra í bakkan, KFS fengu aukaspyrnu, og Sindri Grétars var fljótur að hugsa, vippar boltanum inn fyrir vörnina þar sem Sæþór var mættur og setti boltan með vinstri í nær hornið. Ýmis menn tóku miðjuna, spörkuðu fram og leikurinn var flautaður af.

2-3 tap á heimavelli því staðreynd og baráttan við úrslitakeppnissætið verður erfiðari, en alls ekki ómöguleg. Enda aðeins 6 stig í efsta sætið, 3 stig í annað sætið og við í því þriðja. Ægir er svo einu stigi á eftir okkur með 15 stig. Svo hafa 3 lið 10 stig og KFR situr á botninum með 1 stig. Dómarinn átti fínan leik, þótt að fleiri leikmenn Ýmis hefði getað fengið spjöld. Það voru aðeins 3 mín í seinni hálfleik sem skildu liðin af, dýrt að fá á sig tvö mörk á 3 mín en svona er fótboltin og því aðeins að gefa í og sigra Ægir á föstudaginn, en sá leikur er í Þorlákshöfn og er nánast úrslitaleikur hvort liðið ætlar sér í baráttuna og hvort ætlar að sitja um miðja deild.

Liðið: Hannes í markinu. Aðrir leikmenn: Adólf, Stefán Þór (Trausti Hermanns), Hlynur Stefáns, Hjalti Jóh, Sigurður Ingi, Magnús Stefáns (Andri Eyvinds), Kristján Georgs (Tryggvi Hjalta), Anton Rafn (Einar Kristinn), Sæþór og Magnús Steindórs (Sindri Grétars)


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 08:13 //-


mánudagur, júlí 23, 2007

KFS - Ýmir í kvöld 

Leikur KFS og Ýmis sem fram átti að fara síðast liðinn föstudag en var frestað vegna ófærðar, verður leikinn í kvöld á Helgafellsvelli, klukkan 20:00. Frítt er á völlinn og hvetjum við alla til að mæta og hvetja lið KFS til sigurs.

Næstu leikir hjá KFS er svo útileikur við Ægir, í þorlákshöfn á föstudaginn og svo heimaleikur á miðvikudaginn fyrir þjóðhátíð við Árborg. En sá leikur verður leikinn á Hásteinsvelli og verður án efa rosaleg þjóðhátíðarstemning í stúkunni.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 10:22 //-


föstudagur, júlí 20, 2007

Leiknum frestað... 

Vegna ófærðar hefur leik KFS og Ýmis verið frestað. Leikurinn fer fram á Helgafellsvelli klukkan 20:00 á Mánudagskvöldið.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 17:46 //-



KFS - Ýmir mættast í kvöld 

Lið Ýmis kemur í heimsókn til Vestmannaeyja í kvöld og mun etja kappi við hið gríðarfallega lið KFS á Helgafellsvölli klukkan 20:00. Veðrið hér í eyjum er búið að vera gott og lítur út fyrir að það verði sólskin þegar liðin mætast í kvöld. Helgafellsvöllur er kannski ekki í toppstandi útaf þurrkunum en samt betri en aðrir vellir á eyjunni (fyrir utan kannski Hásteinsvöll).

KFS er búið að spila vel í sumar, búið að fá á sig fá mörk og sat í öðru sæti í riðlinum, en í síðasta leik kom í ljós að það verður ekki létt að komast upp. KFS er núna í þriðja sæti en á leik til góða á Hamar, sem vann KFR örugglega í gær. Grótta er enn í fyrsta sæti með 22 stig, Hamar í því öðru með 19 og loks KFS í þriðja sæti með 16 stig en á leik til góða. Ægir hefur svo 15 stig í fjórða sæti.

Ýmir hefur ekki komist í gang í sumar en voru mjög öflugir þegar við mættum þeim í fyrsta leik sumarsins. Þeir sitja í næst neðsta sæti með 7 stig en Zeljko mun koma til eyja til að hirða öll 3 stigin og hefna 3-1 tap sinna manna fyrir KFS.

Leikurinn verður klukkan 20.00 á Helgafellsvelli, frítt verður á völlinn, og því um að gera að kíkja út í góða veðrið á föstudagskvöldi og horfa á fótboltan eins og hann gerist "bestur".


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 08:58 //-


sunnudagur, júlí 15, 2007

Myndir frá KFR leiknum 

Davíð Egilsson var á síðasta heimaleik KFS með myndavélina og tók nokkrar góðar myndir af leiknum. Því miður komst ég ekki í að setja þær á netið fyrr en núna, en hægt er að skoða þær bæði undir myndum og einnig með því að smella á tengillinn sem fylgir þessari frétt.

Myndirnar eru mjög góðar og vonum við eftir að hann kíki á fleiri leiki til að birta fleiri myndir á þessari síðu. Næsti heimaleikur er á föstudaginn á móti Ýmir.

Smelltu hérna til að skoða myndirnar.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 19:52 //-


laugardagur, júlí 14, 2007

Hamar 4-0 KFS 

Í gær, föstudag, spilaði KFS í Hveragerði á móti liði Hamars. Fyrir leikinn var þriggja stiga munur á liðunum þar sem bæði lið voru í toppbaráttu og því mjög mikilvægur leikur. Leikurinn hófst klukkan 19:30 á Grýluvelli í blíðskaparveðri.

Leikurinn byrjaði að krafti og áttu KFS menn gott færi á upphafsmínútunum þegar boltin berst á lofti til Sæþórs sem á gott skot en yfir markið fór boltinn. Svo á 19 mín komast Hamarsmenn upp vinstri kantin þar sem sending kemur fyrir markið og leikmaður Hamars setur boltan yfir línuna. Það er eins og KFS hafi aðeins dottið niður við þetta mark og það nýtti einn útlendingurinn hjá Hamar, en á 29 mín fær hann boltan fyrir utan teig, leikur á 2-3 leikmenn KFS og setur boltan snyrtilega í fjærhornið. Staðan því orðin 2-0 og útlitið ekki gott fyrir KFS, sem ekki voru að skapa sér nein alvöru færi en hefðu samt geta skorað 1-2 mörk með smá heppni sem var engan vegin til staðar þennan daginn.

Seinni hálfleikur ætluðu KFS að snúa við blaðinu en á 52 mín fær sami útlendingurinn hjá Hamri boltan fyrir utan teig, leikur á einn varnarmann KFS og hamrar svo boltan í þakvinkilinn. Bæði lið sóttu nokkuð og rétt eins og í fyrri hálfleik hefði KFS geta minnkað munin en inn vildi boltinn ekki. Maggi Steindórs átti gott skot í stöngin, Steingrímur skaut rétt framhjá, ásamt að leikmenn KFS áttu nokkur laus skot sem markvörður Hamars átti ekki í miklum vandræðum með. Svo til að setja punktin yfir i-ið þá skoruðu Hamars menn fjórða og síðasta mark sitt á 79 mín með góðu skoti fyrir utan teig, yfir markvörð KFS.

4-0 því staðreynd og KFS menn gjörsamlega skotnir niður eftir að hafa verið í skýjunum yfir 9-0 sigri á KFR. En eins og sést í þriðju deildinni þá er engin leikur auðveldur og því verður bara að læra af leiknum og koma tvíefldir á föstudaginn þegar Ýmis menn koma í heimsókn á Helgafellsvöll.

Liðið: Sigurður Einarsson í markinu, aðrir leikmenn, Adólf, Sindri Viðars, Stefán Þór, Einar Kristinn (Þorsteinn), Anton Rafn (Magnús Stefáns), Sigurður Ingi (Magnús Steindórs), Hjalti Jóh, Andri Eyvinds, Sæþór og Steingrímur (Víðir Róbers). Ónotaður varamaður: Trausti Ágúst.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 21:38 //-


föstudagur, júlí 13, 2007

Hamar - KFS í kvöld 

Í kvöld klukkan 19:30 mun KFS ferðast til Hveragerðis á Grýluvelli og mæta þar liði Hamars. Hamar er sem stendur í fjórða sæti og er búið að fá á sig næst fæst mörk í riðlinum fyrir utan lið KFS. Þetta er fyrsti leikurinn í seinni umferð riðilsins og endaði fyrri leikurinn með 0-0 jafntefli á Helgafellsvelli, í brjáluðu veðri.

Leikurinn í kvöld er gríðarlega mikilvægur þar sem KFS getur komið sér fyrir í efsta sæti með sigri, en Grótta gerði jafntefli í gærkvöldi við Ægismenn. KFS getur því, með sigri í kvöld, jafnað Gróttu að stigum og munu hafa betri markatölu. En Hamarsmenn munu ekki gefa neitt eftir því með sigri þeirra þéttist pakkinn gríðarlega og ná þeir að jafna okkur að stigum í öðru sæti. Nokkrir leikmenn KFS hafa verið að berjast við smávægileg meiðsli en þá fá bara nýjir menn að spreyta sig, því leikmannahópur KFS er stór eins og hefur verið undanfarin ár.

Leikurinn hefst á Grýluvelli klukkan 19:30 og hvetjum við alla eyjamenn sem eru á suðurlandinu að kíkja á leikinn sem vonandi verður spilaður í sól og blíðu.


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 09:23 //-


mánudagur, júlí 09, 2007

KFS 9-0 KFR 

KFS vann stórsigur síðasta föstudag á frekar slöppu liði KFR manna. Fyrir leikinn var KFS sigurstranglegri, í næst efsta sæti og aðeins búnir að fá á sig eitt mark í 5 leikjum. KFR hins vegar í neðsta sæti og ekki mjög góða markatölu. Leikurinn fór fram í góðu veðri og fjölmargir áhorfendur voru mættir enda margir á eyjunni til að fagna goslokahátíðinni.

Fyrri hálfleikur byrjaði kröftulega og greinilegt að KFS var betra liðið á vellinum. Eftir einungis tvær mínútur fékk fyrirliði KFS, Trausti Hjaltason boltan á hægri kantinn og setti knöttinn fram hjá markverði KFR manna. 1-0 og aðeins 2 mín búnar. Trausti fékk svo annað gott færi á upphafsmínutunum. Á 10 mín komst KFS í 2-0 með marki frá Magga Steindórs, þar sem hann setti boltan laglega í fær hornið fyrir utan teig. Á 32 mín meiddist svo Jóhann Rúnar, miðjumaður KFS og þurfti því að yfirgefa völlinn. Þriðja markið kom svo á 35 mín og var það aftur Magnús Steindórsson sem núna setti boltan inn af stuttu færi. 3-0 því í hálfleik og KFS menn í góðri stöðu.

Einn breyting var gerð á liði KFS í hálfleik, útaf fór Maggi Steindórs og inná kom Sæþór Jóhannesson og tók það hann einungis 11 mín að setja mark sitt á leikinn. Eftir gott samspil við bróður sinn, Steingrím, komst Sæþór einn á móti markverði og lagði boltan snyrtilega í hliðarnetið. Aðeins 2 mín seinna á Kristján Georgsson góða sendingu fyrir markið sem Sigurður Ingi skallar fallega í mark KFR manna og staðan orðinn 5-0 en KFS menn engan veginn hættir. Aðeins 3 mín seinna eða á 61 mín á Sæþór svo góða sendingu inn á Magnús Stefánsson, sem kom inná sem varamaður á 59 mín, sem sleppur einn í gegn og setur boltan fallega í netið. Magnús var að spila sinn þriðja leik fyrir KFS og aðeins búinn að vera inná í 2 mín þegar hann skorar í sinni fyrstu snertingu í leiknum, glæsilegt hjá þessu mjög svo hávaxna leikmanni. Stuttu seinna komst svo Sæþór einn fyrir vörn KFR manna eftir mistök varnarmanns en með ótrúlegri markvörðslu kom hann í veg fyrir að Sæþór myndi bæta við öðru marki sínu. En á 85 mín kom hann engu vörnu við þegar Sæþór fær góða stungusendingu frá Kidda Gogga og skorar sitt annað mark í leiknum. 3 mín seinna kemur góð sending frá Antoni sem Tryggi Hjaltason, sem einnig hafði komið inná sem vararmaður, nær að skalla undir markvörð KFR manna og staðan því 8-0. Í næstu sókn KFS manna fær svo Anton boltan á vinstri kantinn, fer að markinu og setur boltan í fjær hornið og því 9-0 á 89 mín. Þótt svo að 4 mín væri bætt við leikinn náðu KFS menn ekki að setja tíunda markið og 9-0 sigur því staðreynd. Reyndar áttu KFR menn skot í stöngin nokkrum mín fyrir leikslok en ekki var "heppnin" með þeim.

KFS því komnir í góða stöðu í 2 sæti riðilsins og bættu markatöluna sína rækilega en fyrir leikinn höfðu KFS menn aðeins komið boltanum 11 sinnum í mark andstæðingana og því næstum búnir að tvöfalda hana í þessum leik. Grótta er en í efsta sæti með 18 stig, KFS fylgir þeim eftir með 16 stig og svo koma Hamar og Ægir bæði með 13 stig. Næst mætast lið KFS og Hamar á föstudaginn í Hveragerði og í sömu umferð fær Ægir Gróttu menn í heimsókn. En riðilinn er gríðarlega jafn og spennandi og eru þessi 4 lið að berast fyrir 2 efstu sætunum til að komast í úrslitakeppnina og eiga þá möguleika á að komast í 2.deild að ári.

Lið KFS: Sigurður Bragason í markinu. Adólf, Sindri Viðars, Stefán Þór, Einar Kristinn (Magnús Stefáns), Anton Rafn, Sigurður Ingi, Jóhann Rúnar (Kiddi Gogga), Trausti Hjaltason (Tryggvi Hjalta), Steingrímur og Magnús Steindórsson. (Sæþór)


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 10:19 //-


föstudagur, júlí 06, 2007

KFS - KFR í kvöld 

KFR menn koma í heimsókn til Vestmannaeyja í kvöld og mæta þar liði heimamanna í KFS. Leikurinn fer fram á Helgafellsvelli klukkan 20:00 og verður þetta örugglega hörku viðureign rétt eins og aðrir leikir KFS.

KFS er sem stendur í 2. sæti A-riðils með 13 stig ásamt Hamri og Ægir en við eigum einn leik til góða og getum því komið okkur vel fyrir í öðru sætinu. Grótta situr en sem fastast í efsta sæti með 18 stig og hefur unnið 6 leiki en aðeins einu sinni borið ósigur, og það var gegn hinu geysi fallega liði KFS.

KFR menn sem KFS mætir í kvöld hefur hins vegar ekki byrjað mótið jafn vel og sitja á botninum með aðeins 1 stig eftir 6 leiki. (Svipað og KR). Þetta er því leikur sem verður að vinnast til að halda í við Gróttu á toppnum ásamt því að komast nokkrum stigum fram úr Hamri og Ægi.

Við viljum hvetja sem flesta til að koma á völlinn og styðja okkar lið, enda bara gaman að sitja úti í góðu veðri og njóta skemmtilegs fótbolta.

Staðan í A-riðli 3-deildar.
1. Grótta (18 stig, 7 leiki)
2. KFS (13 stig, 6 leiki)
3. Hamar (13 stig, 7 leiki)
4. Ægir (13 stig, 7 leiki)
5. KB (9 stig, 7 leiki)
6. Árborg (7 stig, 7 leiki)
7. Ýmir (4 stig,7 leiki)
8. KFR (1 stig, 6 leiki)


-// Þetta skrifaði Slinger kl. 08:10 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008