Tryggvi Hjalta, annar af okkar uppáhalds sonum, gekk að eiga hana Guðnýju sína í gær, laugardaginn 26. júlí. Þeir feðgar, Hjalti og Tryggvi, þóttu koma vel út úr hnéprófinu og áttu þeir ekki í teljandi vandræðum með að rísa úr sætum þegar gestir gengu inn í kirkjuna. Að sögn viðstaddra var Hjalti ekki sami naglinn þegar hann var búinn að sleppa hendinni af drengnum og þegar hann stendur á hliðarlínunni með KFS. Tryggvi sló eldri bróður sínum, Trausta, ref fyrir rass og var fyrstur til að ganga út. Við í KFS óskum Tryggva og Guðnýju til hamingju með daginn og að sjálfsögðu Hjalta og Veru. Og ef ég þekki þessar tvær fjölskyldur rétt má gera ráð fyrir að það hafi verið sungin tvö eða þrjú lög í veislunni.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 09:43 //-
Nú höfum við endurheimt Anton Rafn, eða Tona, frá ÍH. Hann lék með okkur í fyrra og stóð sig vel. Þá er Birkir Hlyns. kominn aftur til okkar á lánssamning frá ÍBV. Hann hefur því tækifæri á að ná fleiri leikjum með föður sínum. Sennilegast að þeir spili saman í framlínunni, svona eins og Arnar og Bjarki! Báðir frekar markagráðugir. VIð bjóðum Tona og Birki velkomna til okkar.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 09:39 //-
Síðasti leikur fyrir Þjóðhátið verður gegn KV á gervigrasinu í vesturbænum kl. 19 á morgun. Um erfiðan leik verður að ræða þar sem eru í þriðja sæti. Næsti leikur þar á eftir verður svo gegn Berserkjum úti á föstudegi eftir Þjóðhátíð. Fimm leikir eru eftir af mótinu og ætlum við að sjálfsögðu að reyna að vinna þá alla. Hvetjum Eyjamenn í borginni að kíkja í vesturbæinn á morgun og hvetja KFS áfram gegn KV. Gott að fara með sigur inn í Þjóðhátíð.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 09:32 //-
KFS tekur á móti liðinu sem er í 2. sæti riðilsins, Árborg. Búast má við hörkuleik en Árborg vann fyrsta leik þessara liða (af þremur) á Selfossi 3-1. KFS á því harma að hefna og má segja að sigur sé nauðsynlegur ætli liðið sér í toppbaráttuna. Leikur fer fram á Helgafellsvelli og hefst kl. 20. Þá er gaman að segja frá því að aðstoðardómarar í kvöld verða bræðurnir og fyrrum leikmenn KFS, þeir Sigurður Ingason og Júlíus Ingason. Júlíus hefur nú oftar verið með flautuna en flaggið en gaman að þeir bræður skyldu sjá sér fært að aðstoða okkur.
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 15:48 //-