Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



mánudagur, ágúst 18, 2008

Lokahófið á laugardag 

Lokahóf KFS verður á laugardaginn þar sem síðasti leikur sumarsins er þann dag og allir á svæðinu. Að þessu sinni er þemað hafið þar sem Sindri er nýkominn af sjónum og heyrst hefur að sjálfur Slinger sé á sjónum. Já hver hefði trúað því, alla vega ekki Ívar Robba. Verður lokahófið haldið að Skvísusundi 1, í krónni hjá Viðari Ella. Það þýðir að ekki er krafist þess að menn komi í jakkafötum með bindi (sorrý Ívar og Siggi Ingi). Þar verður grillað og keppni milli deilda (R.vík og Eyjar) um skemmtilegasta skemmtiatriðið. Kannski verður farið í bíó að skoða hugsanlegt KFS myndband, sem einmitt Slinger sjóari ætlaði að klippa!
Allir hvattir til að mæta, en endilega láta mig vita þannig að Maggi Ella fái nóg að borða, en hann verður einmitt með uppboð á pólsku zloty og prins polo, en þeir eru einmitt að fara að taka upp Evru.
Mæting nánar auglýst síðar.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:19 //-



Lokaumferð Íslandsmótsins á laugardag 

KFS leikur síðasta leik sinn á þessu tímabili á laugardaginn gegn KFR í Eyjum. Verður leikurinn kl. 14 á laugardag. Tekst KFS að innbyrða sinn fjórða sigur í sumar eða gerir það sitt sjötta jafntefli í sumar. Vonast er til að leikurinn geti farið fram á Hásteinsvelli en það er ekki alveg ljóst ennþá. Sindri Viðarsson er kominn heim af sjónum og er byrjaður að æfa af krafti fyrir síðasta leikinn. Jói hins vegar er að gera bragðtilraunir á Brynjuís á Akureyri, en verður vonandi kominn heim til að hvetja liðið áfram.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:05 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008