Þjálfarinn okkar, Getraunastjórinn okkar, Stjórinn okkar, Doktorinn okkar og eiginmaður hennar Veru Bjarkar, hann Hjalti Kristjánsson, er 50 ára í dag, sunnudaginn 23. nóvember 2008. Við sendum honum kærar afmæliskveðjur til Parísar þar sem hann heldur uppá daginn með Veru Björk, sem einnig varð 50 ára á árinu. Til hamingju með daginn Hjalti. Hver veit nema hann nái einum leik næsta sumar, kominn á sextugsaldurinn!!
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 10:34 //-