Í dag, miðvikudaginn 20. maí 2009, setur KFS nýja heimasíðu í loftið á slóðinni http://www.kfs.is/
Heimasíðan er byggð á kerfi sem Smartmedia hefur smíðað og sáu þeir (Sæþór Jóhannesson aðallega) um hönnun síðunnar. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Það er von okkar að nýja síðan eigi eftir að verða vel sótt og því er lofað að hún á eftir að vera líflegri en sú gamla.
Síðan er ekki alveg fullmótuð en nóg til þess að opna hana. Eitthvað af myndum á eftir að koma inn og verða margar skemmtilegar frá lokahófum okkar þar á meðal. Enn og aftur vil ég þakka Smartmedia fyrir og vona að leikmenn og stuðningsmenn verði duglegir að taka þátt í umræðum sem skapast.
-// Þetta skrifaði Slinger kl. 23:31 //-
Geri það að tillögu minni til KSÍ að þeir endurraði í riðla í 3. deild í sumar og saman í B-riðli verði eftirfarandi lið:
KFGKFKKFRKFSKBKVEinfalt og þægilegt að skrifa þetta á leikskýrslur! Fyrir utan það hvað þetta er nú fallegt svona á blaði og einfaldara fyrir þá sem lýsa leikjunum!!
-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 21:10 //-