Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



miðvikudagur, maí 20, 2009

Ný heimasíða KFS.is 


Í dag, miðvikudaginn 20. maí 2009, setur KFS nýja heimasíðu í loftið á slóðinni http://www.kfs.is/
Heimasíðan er byggð á kerfi sem Smartmedia hefur smíðað og sáu þeir (Sæþór Jóhannesson aðallega) um hönnun síðunnar. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Það er von okkar að nýja síðan eigi eftir að verða vel sótt og því er lofað að hún á eftir að vera líflegri en sú gamla.

Síðan er ekki alveg fullmótuð en nóg til þess að opna hana. Eitthvað af myndum á eftir að koma inn og verða margar skemmtilegar frá lokahófum okkar þar á meðal. Enn og aftur vil ég þakka Smartmedia fyrir og vona að leikmenn og stuðningsmenn verði duglegir að taka þátt í umræðum sem skapast.



-// Þetta skrifaði Slinger kl. 23:31 //-


þriðjudagur, maí 05, 2009

Endurröðun í riðla í 3. deild í sumar 

Geri það að tillögu minni til KSÍ að þeir endurraði í riðla í 3. deild í sumar og saman í B-riðli verði eftirfarandi lið:
KFG
KFK
KFR
KFS
KB
KV

Einfalt og þægilegt að skrifa þetta á leikskýrslur! Fyrir utan það hvað þetta er nú fallegt svona á blaði og einfaldara fyrir þá sem lýsa leikjunum!!


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 21:10 //-


föstudagur, apríl 03, 2009

Firmamót Powerade og Axel Ó. laugardaginn 11. apríl 

KFS mun halda innanhúsmót í fótbolta um páskana í samstarfi við Powerade og Axeló.
Mótið fer fram laugardaginn 11.apríl í íþróttahúsinu frá 12:30 – 16:00.
Spilað verður í tveimur riðlum. Það spila allir við alla í sínum riðli og komast tvö efstu liðin úr hvorum riðli í úrslit.
Ekki er vitlaust að tala við eitthvað fyrirtæki í bænum og spila undir merkjum þess. Þannig að nú er bara að smala í lið og mæta til leiks laugardaginn 11. apríl kl. 12:30.

Ýmsir punktar um mótið:
Leiktími: Leiktíminn er 1 x 8 mínútur.
Fjöldi leikmanna: 8 leikmenn. 5 leikmenn + 3 varamenn (frjálsar skiptingar)
Ábending: Sérstaklega gott er að hafa stelpu með sér í liði þar sem tvö mörk fást fyrir hvert mark frá henni. Einungis er leyfilegt að hafa einn leikmann úr úrvalsdeild í sínu liði. Spilað er eftir hefðbundnum innanhúsreglum að öðru leiti.

Sigurliðin í undanúrslitunum mætast síðan í úrslitaleik. Einnig er spilað um 3ja sætið.
Þátttökugjald: Þátttökugjald á lið er 8000 krónur. (1000 kall á mann)
Gera þarf upp mótsgjaldið strax í upphafi móts fyrir liðið í heild sinni.
Skráning: Skráning og nánari upplýsingar hjá Trausta Hjaltasyni í síma: 698-2632
Eða í gegnum tölvupóst: trausti07@ru.is
Páskakveðja,
Stjórn KFS.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 08:56 //-


sunnudagur, nóvember 23, 2008

Doktorinn 50 ára í dag 

Þjálfarinn okkar, Getraunastjórinn okkar, Stjórinn okkar, Doktorinn okkar og eiginmaður hennar Veru Bjarkar, hann Hjalti Kristjánsson, er 50 ára í dag, sunnudaginn 23. nóvember 2008. Við sendum honum kærar afmæliskveðjur til Parísar þar sem hann heldur uppá daginn með Veru Björk, sem einnig varð 50 ára á árinu. Til hamingju með daginn Hjalti. Hver veit nema hann nái einum leik næsta sumar, kominn á sextugsaldurinn!!


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 10:34 //-


mánudagur, ágúst 18, 2008

Lokahófið á laugardag 

Lokahóf KFS verður á laugardaginn þar sem síðasti leikur sumarsins er þann dag og allir á svæðinu. Að þessu sinni er þemað hafið þar sem Sindri er nýkominn af sjónum og heyrst hefur að sjálfur Slinger sé á sjónum. Já hver hefði trúað því, alla vega ekki Ívar Robba. Verður lokahófið haldið að Skvísusundi 1, í krónni hjá Viðari Ella. Það þýðir að ekki er krafist þess að menn komi í jakkafötum með bindi (sorrý Ívar og Siggi Ingi). Þar verður grillað og keppni milli deilda (R.vík og Eyjar) um skemmtilegasta skemmtiatriðið. Kannski verður farið í bíó að skoða hugsanlegt KFS myndband, sem einmitt Slinger sjóari ætlaði að klippa!
Allir hvattir til að mæta, en endilega láta mig vita þannig að Maggi Ella fái nóg að borða, en hann verður einmitt með uppboð á pólsku zloty og prins polo, en þeir eru einmitt að fara að taka upp Evru.
Mæting nánar auglýst síðar.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:19 //-



Lokaumferð Íslandsmótsins á laugardag 

KFS leikur síðasta leik sinn á þessu tímabili á laugardaginn gegn KFR í Eyjum. Verður leikurinn kl. 14 á laugardag. Tekst KFS að innbyrða sinn fjórða sigur í sumar eða gerir það sitt sjötta jafntefli í sumar. Vonast er til að leikurinn geti farið fram á Hásteinsvelli en það er ekki alveg ljóst ennþá. Sindri Viðarsson er kominn heim af sjónum og er byrjaður að æfa af krafti fyrir síðasta leikinn. Jói hins vegar er að gera bragðtilraunir á Brynjuís á Akureyri, en verður vonandi kominn heim til að hvetja liðið áfram.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 23:05 //-


sunnudagur, júlí 27, 2008

Tryggvi Hjaltason genginn í það heilaga 

Tryggvi Hjalta, annar af okkar uppáhalds sonum, gekk að eiga hana Guðnýju sína í gær, laugardaginn 26. júlí. Þeir feðgar, Hjalti og Tryggvi, þóttu koma vel út úr hnéprófinu og áttu þeir ekki í teljandi vandræðum með að rísa úr sætum þegar gestir gengu inn í kirkjuna. Að sögn viðstaddra var Hjalti ekki sami naglinn þegar hann var búinn að sleppa hendinni af drengnum og þegar hann stendur á hliðarlínunni með KFS. Tryggvi sló eldri bróður sínum, Trausta, ref fyrir rass og var fyrstur til að ganga út. Við í KFS óskum Tryggva og Guðnýju til hamingju með daginn og að sjálfsögðu Hjalta og Veru. Og ef ég þekki þessar tvær fjölskyldur rétt má gera ráð fyrir að það hafi verið sungin tvö eða þrjú lög í veislunni.


-// Þetta skrifaði Formaðurinn kl. 09:43 //-



september 2003
október 2003
desember 2003
janúar 2004
mars 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
maí 2005
júní 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
september 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
ágúst 2008
nóvember 2008
apríl 2009
maí 2009