Eyvindur Steinarsson, poppari, og
Bára Grímsdóttir,
tónlistarkona.
Fjölskylduhagir:
Einhleypur
Menntun / atvinna:
Stúdent frá FÍV,
er að fara í frekara nám
til Amsterdam.
Knattspyrnuferill:
Lék með VVA Spartan í
Amsterdam upp í 6. flokk, eftir
það Þór, ÍBV
og byrjaði með KFS 2005.
Uppáhaldsfélög
í fótbolta:
Manchester United, ÍBV og KFS.
Uppáhaldsleikmenn:
Cantona, Ronaldo og Eiður Smári
Uppáhaldssamherjar:
Andri Ólafs., Óli Berry
og Kiddi Gogga.
Erfiðasti
andstæðingur:
E-r í Breiðablik (vi. bakvörður)
Minnisstæðasi
leikur:
Leikurinn fyrir Þjóðhátíð
í fyrra.
Minnisstæðasta
mark:
Tók klippu í hornið
rétt fyrir utan teig í
þessum leik.
Markmið í
lífinu:
Að vera sáttur og deila
því með öðrum.
Af hverju K.
F. S.?
Eftir 2 ára meiðsli vildi
ég komast í gang og hef
ekki viljað fara síðan.
Skemmtilegt atvik
með K. F. S.:
Allar kerlingasögurnar hans Sigga
Inga, sem ég heyri á leiðinni
til Reykjavíkur. Sagan um símanúmerið,
sem hann fékk á rauðu
ljósunum hjá einni dömunni
var best. Sögunum hefur reyndar
fækkað upp á síðkastið
eftir að Siggi komst á fast
og fór að vera í Reykjavík.
Ummæli
þjálfara um Andra:
Andri hefur verið dyggur liðsmaður
KFS sl. 2 tímabil. Hann hefur
reynst okkur vel sem bakvörður,
en aðallega sem kantmaður. Hann
hefur mikla hæfileika frá
náttúrunnar hendi, en
á eftir að beisla þá
betur, flækir hlutina stundum
of mikið, kannski af því
að hann hefur fleiri möguleika
en flestir. Hann er óhræddur
að hafa boltan, það á
ekki við um alla, þokkalegur
varnarlega, en fyrst og fremst góður
liðsmaður. Hann þyrfti
að hemja skapsmunina betur og mér
finnst reyndar að honum hafi farið
talsvert fram í því
í sumar. Ég óska
honum alls hins besta í Hollandi
og vona, að hann verði emð
okkur á næsta tímabili.
-// STEINGRÍMUR JÓHANNESSON
//-
(6.júlí
2007)
Fæddur:
14 júní
1973 í Reykjavík
Foreldrar:
Geirrún Tómasdóttir,
yfirræstitæknir, og Jóhannes
heitinn Kristinsson.
Fjölskylduhagir:
Giftur Jónu Dís Kristjánsdóttur,
eigum 10 ára dóttur og
annað á leiðinni.
Menntun / atvinna:
Rafvirki í Reykjavík.
Knattspyrnuferill:
Lék með Þór
Vme. upp í 3 flokk. eftir það
ÍBV, byrjaði með mfl.
1990, spilaði 2 Bikarúrslitaleiki
með 2. flokki, ÍM með
mfl. 1997 og 1998, Bikarmeistarar 1998,
Deildarbikarmeistarar, meistarar meistaranna.
Fór í Fylki 2001-2, Bikarmeistari
bæði árin. Með
ÍBV 2003-5, vorum í 2.sæti
eitt árið, með Selfossi
2006 og KFS í ár. Lék
einn leik með KFS 2004. Markakóngur
1998 og 1999. Þrír U-21
landsleikir, einn A-landsleikur 2000.
Uppáhaldsfélög
í fótbolta:
Everton, ÍBV og KFS
Uppáhaldsleikmenn:
Graham Sharp, Gary Lineker og Ásgeir
Sigurvinsson.
Bikarleikurinn 1998, þegar við
bræðurnir skoruðum gegn
Leiftri.
Minnisstæðasta
mark:
Fyrsta markið í úrvalsdeildinni
gegn Fram, Birkir Kristins. var í
marki þeirra á Þórsvellinum
1992. Sending kom fyrir frá
vinstri á vítapunkt,
náði að stinga mér
fram fyrir hann og skalla í
mark.
Markmið í
lífinu:
Að koma sér vel fyrir.
Af hverju K.
F. S.?
Fyrir Geirrúnu Tómasdóttur,
svo að við bræðurnir
3 gætum spilað saman og ég
gæti kennt "litla dýrinu"
hvernig á að spila sem sóknarmaður.
Munurinn á
ÍBV og KFS:
Hærri standard og meiri alvara
hjá ÍBV, menn að hafa
gaman og leggja sig fram í KFS
Skemmtilegt atvik
með K. F. S.:
Skemmtileg ferð á Ólafsfjörð
2003, mikil stemning á leiðinni,
keyrðum frá Bakka, allir
dauðþreyttir, spiluðum
daginn eftir, Palli skoraði.
Ummæli
þjálfara um Steingrím:
Það var frábært
að fá Steingrím í
hópinn, hann er landskunnur sem
markaskorari og það merkilega
er, að þótt ég
hafi fylgt honum til Þýskalands
í hans eina landsleik, hefur
hann samt komið mér á
óvart með miklum skilningi
á leiknum, þá sérstaklega
staðsetninguum. Ég ráðlegg
því "litla dýrinu"
að fylgjast vel með staðsetningunum
hans Steingríms!¨Vonandi
verður STeini með okkur áfram
á næsta tímabili,
vona, að hann sé ekki búinn
að fá skammtinn.
-// MAGNÚS STEFÁNSSON
//-
(20.júlí
2007)
Fæddur:
1 apríl 1984 í
Reykjavík
Foreldrar:
Stefán Magnússon, bóndi
í Fagraskógi, og Sigrún
Jónsdóttir, sjúkraþjálfari.
Fjölskylduhagir:
Er með kærustu, Ester Óskarsdóttur,
nema í VMA, Barnlaus.
Menntun / atvinna:
Nemandi í Háskólanum
á Akureyri, í kennaranámi.
Atvinnumaður í handbolta
með Akureyri. Er í landsliðshópnum
í handbolta. Er í lögreglunni
í Vestmannaeyjum í sumarvinnu.
Knattspyrnuferill:
Lék með K.A. upp í
2. flokk, síðan með Hömrunum
á Akureyri og loks K.F.S. Lentum
í 2. sæti ÍM í
3. flokki.
Uppáhaldsfélög
í fótbolta:
Chelsea, Valur Rk., K.A., Hamrarnir
og KFS.
Uppáhaldsleikmenn:
John Terry og Pálmi Rafn, vinur
minn, Pálmason í Val.
Uppáhaldssamherjar:
Erfitt að gera upp á milli,
hef gaman af Sæþóri.
Erfiðasti
andstæðingur:
Sverrir Gararsson, F.H.
Minnisstæðasi
leikur:
Tapleikur í úrslitum
3. flokks ÍM gegn F.H. (Kjarninn
í liði þeirra í
dag)
Minnisstæðasta
mark:
Markið með K.F.S. í
1. snertingu minni gegn K.F.R. stunga
inn fyrir frá Sæþóri,
skoraði með vinstri í
hornið.
Markmið í
lífinu:
Að standa mig vel, vera sáttur
við sjálfan mig.
Af hverju K.
F. S.?
Staddur í Vestmannaeyjum og
langaði til að spila fótbolta.
Munurinn á
Hömrunum og KFS:
Ekki mikill, í báðum
tilvikum hressir félagar, sem
hafa gaman af að sparka í
tuðru.
Skemmtilegt atvik
með K. F. S.:
Þegar við vorum stoppaðir
af lögreglunni (ég keyrði
ekki) á heimleið eftir síðasta
útileik.
Ummæli
þjálfara um Magnús:
Það var frábært
að fá Magnús í
hópinn, Magnús minnti
okkur fyrst á Peter Crouch með
alla sína hæð. Hann
er síbrosandi og hefur góð
áhrif á umhverfið.
Hann hefur spilað fína leiki
með okkur, eina áhyggjuefnið
mitt er, að hann er að fara
norður aftur til að spila handbolta,
þótt kærastan hans
sé héðan. Magnús
getur spilað á miðjunni,
ég sá fljótlega
á æfingum, að hann
gæti skorað og setti hann
því í sóknartengilið
í einum leiknum og hann skoraði
sitt 1. deildarmark í 1. snertingu.
hann var leikmaður ársins
hjá Hömrunum í fyrra,
ég er ekki hissa á því
og ef hann stansar hér út
tímabilið bíður
hans stærra hlutverk hjá
okkur en fram að þessu. Hans
helsti styrkleiki er hæðin,
hann nýtir hana vel og hirðir
nær alla skallabolta, veikleiki
er kannski hraðinn, en hann er þó
ekkert lítill, enda maðurinn
stórstígur, þegar
hann er kominn af stað.
-// JÓHANN RÚNAR SIGURÐSSON//-
(6.júlí
2007)
Fæddur:
23 mars 1981 á
Akureyri (Þorpari)
Foreldrar:
Sigurður Rúnar Tryggvason,
rennismiður og Inga Margrét
Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Fjölskylduhagir:
Einhleypur og barnlaus
Menntun / atvinna:
Sjávarútvegsfræðingur,
mastersgráða í reikningshaldi
og endurskoðun. Er að byrja
hjá Vinnslustöðinni.
Knattspyrnuferill:
Lék með K.A. upp í
meistaraflokk, síðan með
Nökkva í 2. og 3. deild,
þá Vaski, Magna í
3 sumur, fórum upp í fyrra
og svo KFS.
Uppáhaldsfélög
í fótbolta:
Arsenal, Bayern Muenchen og KFS
Uppáhaldsleikmenn:
Lothar Matthaeus og Patrick Vieira
Uppáhaldssamherjar:
Sigurður Ingi og Spýtan
Erfiðasti
andstæðingur:
Enginn svo erfiður!
Minnisstæðasi
leikur:
Magni: Í.H. í undanúrslitum
3. deildar í fyrra, tryggðum
okkur upp með þeim leik.
Minnisstæðasta
mark:
Fyrsta markið í mfl.
í hitteðfyrra. Skorðai
gegn Leikni F. á Grenivík,
skallaði við nærstöngina
úr horni í fjærhornið
með hnakkanum.
Markmið í
lífinu:
Að ílengjast í Eyjum.
Af hverju K.
F. S.?
Spýtan keypti mig, kaupverð
óuppgefið!
Munurinn á
Magna og KFS:
Splittað upp hjá KFS í
Reykjavík og Eyjum, samheldnari
hópur hjá Magna, keyrðum
saman á æfingar frá
Akureyri. Meiri knattspyrna hjá
KFS, meira lagt upp úr knattspyrnunni.
Skemmtilegt atvik
með K. F. S.:
Fór með Ágústi
Inga á Bakka í leik. Bíllinn
hans Ágústs Inga mjög
athyglisverður, meira verið
eytt í hljómtæki
en vélarbúnaðinn!
Varla fokheldur.
Ummæli
þjálfara um Jóhann:
Það var frábært
að fá Jóhann Rúnar
í hópinn, hann minnir
mig mikið á Kidda Gogga í
leikskilningi, tækni og yfirferð,
það eru engin smámeðmæli
frá mér. Kiddi var leikmaður
ársins í fyrra. Þegar
Jói kynnist okkur betur fer hann
að tala meira og verður enn
betri. Það er svo undir kvenfólkinu
í Eyjum að negla Jóa
niður hér, þá
gæti hann styrkt vestmanneyska
knattspyrnu mörg ár í
viðbót. Við erum að
stefna á úrslitin í
3. deild, margir okkar leikmanna hafa
ekki prófað það,
en Jói fór upp í
fyrra, ég hef trú á,
að það muni nýtast
okkur vel á lokasprettinum. Það
sem Jói mætti bæta
er helst sóknarhæfileikarnir,
taka skotæfingar eða e-ð
í þá áttina
og að hafa trú á,
að hann geti skorað. meðan
hann spilar eins og hann gerir núna
með okkur, liggur samt ekkert á
því, aðrir geta séð
um þá hluti í liðinu!
-// STEFÁN ÞÓR
ÓLAFSSON//-
(21.júní
2007)
Fæddur:
18. nóvember 1981í
Reykjavík.
Foreldrar:
Ólafur Þór Guðmundsson,
verkstjóri í rækjuverksmiðju
og Hulda Hafsteinsdóttir
Fjölskylduhagir:
Á föstu með Svövu
Sverrisdóttur, bankastarfsmanni,
og barnlaus
Menntun / atvinna:
Búinn með 1 ár í
íþróttafræði
og er á leið í lögfræði.
Þjálfa 6. flokk hjá
Í.R. og vinn í DeCode.
Knattspyrnuferill:
Lék með B.Í. í
yngri flokkum, upp í 3 flokk,
hætti, var í U-landsliðinu
á skíðum, aftur í
BÍ 2004, mfl., síðan
2 ár í utandeildinni með
Hómer, loks KFS í ár.
Lék með Tomma Reynis. og
Pétri Runólfs í
yngri flokkunum.
Uppáhaldsfélög
í fótbolta:
Manchester United, BÍ og KFS
að sjálfsögðu.
Uppáhaldsleikmenn:
Eric Cantona og Stebbi Braga
Uppáhaldssamherjar:
Sigurður Ingi
Erfiðasti
andstæðingur:
Veit það ekki
Minnisstæðasi
leikur:
Man best eftir seinasta leik, góður
leikur.
Minnisstæðasta
mark:
Klárlega vi. fótar
skot í slána og inn,
eftir þríhyrningsspil
við Pétur run. í
4 flokki.
Markmið í
lífinu:
Að hafa gaman af þessu.
Af hverju K.
F. S.?
Alveg óvart, villtist á
æfingu með Óla.
Munurinn á
Hómer og KFS:
Eldri leikmenn, feitari og grófari
í Hómer, flínkari
í KFS
Skemmtilegt atvik
með K. F. S.:
Fyrsta skiptið, þegar ég
sá öll tattúin á
Sigurði Inga og síðan
þau, sem hafa bæst við.
Ummæli
þjálfara um Stefán:
Það var frábært
að fá Stefán Þór
í hópinn, hann var það
eina góða við æfingaleik
gegn Víði í vor, sá
strax að þarna færi
alvöruleikmaður. Stefán
hefur leyst stöðu miðvarðar
afburða vel og er ein höfuðskýringin
á bestu vörn, sem við
höfum átt. Auk þessa
gæti hann spilað nánast
hvað sem er á vellinum, en
þeir Sindri Viðars. hafa passað
vel saman. Stefán er fljótur,
sterkur líkamlega, hefur góða
skallatækni og því
flest til að vera. Það
er erfitt í kringum Stefán
í einkalífinu þessa
dagana, en við stönudm við
bakið á honum. Vonandi hjálpar
vera hans í KFS honum, hún
gerði það svo sannarlega
fyrir mig, þegar að ég
missti son minn fyrir 5 árum
síðan. Þannig er fótbolti
ekki bara leikur, getur verið lífsstíll,
hann er að þjálfa og
virðist vera að falla inn í
þetta mynstur, ég mæli
með því.
-// TRAUSTI ÁGÚST HERMANNSSON
//-
(5.júní
2007)
Fæddur:
13. júlí
1983 í Vestmannaeyjum.
Foreldrar:
Helen Arndís Kjartansdóttir
og Hermann Haraldsson
Fjölskylduhagir:
Laus og liðugur og barnlaus
Menntun / atvinna:
BA-gráða í lögfræði
og er í sumarstarfi hjá
Sýslumanninum hér.
Knattspyrnuferill:
Lék með Tý í
yngri flokkunum og síðan
ÍBV. Lék svo í
2 ár með Val undir stjórn
Seljkos m.a. Loks var það
KFS., Hamar og aftur KFS í sumar.
Var með Gunnari heiðari, Atla
Jóh o.fl. besta 2. flokki landsins.
Uppáhaldsfélög
í fótbolta:
Liverpool, ÍBV og KFS að
sjálfsögðu.
Uppáhaldsleikmenn:
Steve Finnan hjá Liverpool
og Kafu
Uppáhaldssamherjar:
Þorkell hjá Val, nú
Stjörnunni, Sæþór
og allir aðrir hjá KFS
Erfiðasti
andstæðingur:
Ingþór J. Guðmundsson,
Selfossi.
Minnisstæðasi
leikur:
Fyrsti leikurinn í 6. flokki,
var á bekknum, mamma var að
tapa sér yfir því,
Bjössi Ella. hleypti mér
loksins inn á og ég gerði
sigurmarkið á móti
Þór.
Minnisstæðasta
mark:
Í 3. flokki með ÍBV
með Lása. hamraði hann
í fyrsta, mitt á milli
miðju og vítateigs, í
stöngina fjær inn, móti
Keflavík.
Markmið í
lífinu:
Að klára námið
til að byrja með.
Af hverju K.
F. S.?
Taugar til Eyjanna, ÍBV vildi
mig ekki, þekki strákana,
góðir strákar, spennandi
valkostur
Munurinn á
Hamri og KFS:
Meiri stemning í KFS, mikið
stærri hópur í KFS,
mikið af góðum fóboltamönnum
í KFS
Skemmtilegt atvik
með K. F. S.:
Þegar Jóhann Sveinn reif
rauða spjaldið af dómaranum.
Misst því miður af
síðustu 2 lokahófum.
Ummæli
þjálfara um Trausta:
Það var frábært
að fá Trausta inn aftur,
í Hamarsleikinn um daginn, því
að Einar Kristinn var fjarverandi.
Trausti átti stórleik
í bestu vörn, sem ég
man eftir í KFS. Meiðsli
hafa hrjáð Trausta gegnum
tíðina, hann fékk
nóg af því, en sló
svo til með Hamri í vor og
virðist vera að blómstra
síðan. Takk fyrir það,
Hamar, en ég veit, að Hamarsmenn
voru líka þakklátir
að hafa fengið Trausta "lánaðan".
Vona, að Trausti gefi sér
áfram tíma með okkur,
þrátt fyrir erfitt nám,
Trausti er mjög öflugur varnarlega,
getur bætt sig sóknarlega,
en ég segi, að það
er mikið auðveldara að laga
það, en ef öfugt væri.
Trausti á í harðri
samkeppni við Einar Kristin, mjög
efnilegan leikmann, þessa dagana,
vona, að þeir geti báðir
spilað sem mest.
-// GUÐGEIR CLARK //-
(20.maí
2007)
Fæddur:
28. júlí
1983 í Vestmannaeyjum.
Foreldrar:
Inga Ragna Guðgeirsdóttir,
eigandi Kakadú og Kevin heitinn
Clark
Fjölskylduhagir:
Í sambúð, sambýliskonan
heitir Lára Kristjánsdóttir,
nemi, eigum dótturina Kaju Sól,
11 mán. gamla
Menntun / atvinna:
Ég rek fyrirtæki í
Hafnarfirði.
Knattspyrnuferill:
Lék með Tý í
yngri flokkunum og síðan
ÍBV og loks KFS. Var með
Gunnari Heiðari, Atla Jóh
o.fl.
Uppáhaldsfélög
í fótbolta:
Arsenal, ÍBV og KFS að
sjálfsögðu.
Uppáhaldsleikmenn:
Thierry Henry
Uppáhaldssamherjar:
Sigurður Ingi og Stebbi Braga.
Erfiðasti
andstæðingur:
Veit ekki nafnið á honum,
var í Víði.
Minnisstæðasi
leikur:
Úrslitaleikur innanhúss
á Pollamótinu, töpuðum.
Minnisstæðasta
mark:
Öll sömul, markið móti
Ými síðast, fékk
sendingu frá Andra Eyvinds. inn
fyrir varnarmann og pikkaði honum
inn.
Markmið í
lífinu:
Að líða vel.
Af hverju K.
F. S.?
Lið frá Vestmannaeyjum,
ólst þar upp.
Munurinn á
2. flokki og 3. deild:
Þroskaðri fótbolti
í 3. deild
Skemmtilegt atvik
með K. F. S.:
Lokahófið 2006 var mjög
skemmtilegt.
Ummæli
þjálfara um Gugga:
Það var gaman að geta
dregið Gugga aftur inn í
fótboltann, hann hefur meðfædda
markskorunarhæfileika, sem ekki
margir hafa. Hann er leikinn með
boltann, mætti vera vinnusamari,
en er að laga það. Guggi
hefur bætt sig talsvert frá
í fyrra, er þroskaðri
leikmaður, enda orðinn pabbi
og tekur það hlutverk alvarlega.
Það er til fyrirmyndar. Ég
vona að Gugga finnist nógu
gaman hjá okkur til að halda
áfram, fyrir mér er framtíðin
hans í fótboltanum og
hann gæti plumað sig vel í
2. deild með okkur á næsta
ári! Ég ætlast þá
til, að hann leggi enn harðar
að sér en núna, og
keppnisreyndari verður hann.