Forsíða
Saga félagsins
Stjórn KFS
Deildarleikir KFS
Leikmenn KFS
Myndasafn
Vikupistlar Sigurðar Einarssonar
Leikmaður
KFS Spjallið
Sendu okkur póst!
Hvað mætti bæta á síðunni?
Fleiri fréttir
Fleiri myndir
Betra spjallkerfi
Betri kannanir
Betri uppfærslur á leikmönnum
Fleiri Sigga pistla
Útlitið
Það má bæta flest allt
Ekkert, flott síða
 
Skoða niðurstöður
eldri kannana



-// Æfingar KFS //-

Reykjavík 2008
Mán 20:00 KR-velli
Fim 20:00 KR-velli
Lau 17:00 Sporthús


Vestm.eyjar 2008
Mán 20 Týsheimili.
Mið 20 Týsheimili
Fim 20:30 Íþr.heimili



Knattspyrnufélagið Framherjar-Smástund eða KFS eins og það er nefnt, var stofnað 7. september árið 1997 við sameiningu tveggja 3. deildar félaga hér í Vestmannaeyjum, Íþróttafélagsins Framherja og Knattspyrnufélagsins Smástundar. Bæði þessi félög eru enn til í dag, en keppt er undir þeirra nöfnum í Íslandsmóti innanhúss, auk þess sem leikmenn KFS eru skráðir í annað hvort þessara félaga. Sögu þessara tveggja félaga má rekja allt aftur til ársins 1990. Bæðin liðin voru stofnuð um veturinn það ár, Framherjar reyndar undir nafninu Amor en undir því nafni var keppt í tvö ár. Til þess að fá inngöngu í ÍSÍ varð að skipta um nafn á félaginu, nafnið Amor fékkst ekki samþykkt þar, þannig að þá var það skírt Framherjar. Liðin tóku svo þátt í sinni fyrstu keppni 1991 þegar þau tóku þátt í utandeildarkeppninni. Árið 1993 er farið að keppa undir nafni Framherja og nafnið Amor lagt niður. Bæði liðin, Framherjar og Smástund, tóku þátt í utandeildarkeppninni fram til ársins 1994 en það ár byrjuðu þau að spila í 4. deild. Árið 1997 var öllum deildunum breytt þannig að þær færðust upp um einn tölustaf. 4. deild varð því að 3. deild sem varð þá neðsta deild og svo koll af kolli. Árið 1997 spiluðu Framherjar og Smástund saman í riðli, en fram að þeim tíma höfðu þau alltaf spilað í sitt hvorum riðlinum í 4. deild. Þetta má segja að hafi sparað hvoru félagi eina ferð uppá land, en ferðakostnaður er stærsti útgjaldaliðurinn hjá félögum í Vestmannaeyjum. Árið 1998 er svo fyrsta árið sem spilað er undir merkjum KFS í 3. deildinni.

Það má segja að það hafi verið full þörf á að halda úti liði í neðri deildum hér í Vestmannaeyjum. Hér eru margir sem kunna að spila fótbolta en treysta sér ekki að einhverjum sökum ekki til að æfa með meistaraflokki ÍBV. Svo eru dæmi um það að leikmenn hafa byrjað hjá Framherjum eða Smástund og farið svo og leikið með aðalliði ÍBV. Svo hafa leikmenn sem hafa hætt hjá ÍBV af einhverjum orsökum, komið yfir og styrkt leikmannahópinn verulega, hafa getað miðlað af reynslu sinni. KFS hefur í gegnum tíðina átt ágætt samstarf við knattspyrnudeild ÍBV, leikmenn ÍBV sem hafa lent í meiðslum hafa fengið að spila til að koma sér í leikform. Einnig hafa ófáir æfingaleikirnir verið spilaðir, bæði við meistaraflokk ÍBV og 2.flokk. Þetta hefur sparað félögum ferðir uppá land til að undirbúa sig fyrir Íslandsmót. Árið 2001 var svo gengið ennþá lengra í þessu samstarfi þegar samþykktir voru á ársþingi KSÍ svokallaðir venslasamningar. Það gerir félögum í efstu tveimur deildunum kleift að gera venslasamning við félög í neðri deildum og geta þá leikmenn beggja liða gengið á milli allt tímabilið. Auðvitað verður meira um að leikmenn liða í efri deildum fari til liða í neðri deildum til að fá spila. ÍBV og KFS gerðu með sér slíkan samning og eru menn sammála um það að þetta sé báðum liðum til góða. Árið eftir var þessi samningur svo felldur úr gildi vegna nýrra reglna frá UEFA um félagaskipti leikmanna.

Árið 2002 var það besta frá upphafi í sögu KFS og forvera þess. Félagið gerði sér lítið fyrir og sigraði 3. deildina eftir einn mest spennandi úrslitaleik síðari ára gegn Fjölni. Endaði leikurinn í vítaspyrnukeppni eftir dramatískar lokamínútur bæði í venjulegum leiktíma og framlengingu. Þannig að félaginu bíða spennandi tímar og vonandi liggur leiðin áfram uppá við, því það er margt auðveldara en að komast uppúr 3. deild.